Fjölmiðlar

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um menningu og skapandi greinar

PDF

Flokksþingsályktun um menningu og skapandi greinar

PDF

Green Fern

Fjölmiðlar 

  1. Framsókn telur brýnt að stefna stjórnvalda í fjölmiðlamálum sé skýr til að styrkja rekstrarumhverfi og bæta starfsumhverfi fjölmiðlafólks. 

  2. Framsókn vill tryggja rekstrarhæfi einkarekinna fjölmiðla til framtíðar með áframhaldandi rekstrarstuðningi og sérstöðu varðandi opinber gjöld. 

  3. Framsókn leggur áherslu á að jafnræði ríki á auglýsingamarkaði milli einkarekinna miðla, erlendra tæknirisa og Ríkisútvarpsins. 

  4. Framsókn vill að íslenskir fjölmiðlar fái aukinn hlut í þeim verðmætum sem skapast við stafræna dreifingu fréttaefnis á samfélagsmiðlum og leitarvélum og styður innleiðingu 15% alþjóðlegs lágmarksskatts á fjölþjóðleg fyrirtæki. 

  5. Framsókn vill draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði með lagabreytingum sem takmarka auglýsingasölu, án þess að grafa undan upplýsingarétti almennings eða störfum í skapandi greinum. 

  6. Framsókn leggur áherslu á mikilvægi staðarmiðla fyrir lýðræðislega þátttöku og upplýsingamiðlun. Mikilvægt er að styrkja rekstrarumhverfi staðbundinna miðla sérstaklega. Rétt er að auka samstarf Ríkisútvarpsins við staðbundna fjölmiðla, sérstaklega þar sem fjölmiðlun er veik eða af skornum skammti. 

  7. Framsókn vill efla menntun blaða- og fréttamanna, fjölga fagmenntuðum blaðamönnum á ritstjórnum og stofna nýsköpunar- og þróunarsjóð fyrir fjölmiðla, meðal annars til að styðja við nýbreytni og rannsóknarvinnu á fjölmiðlum ásamt því að styðja við talsetningu og textun barnaefnis á íslensku.