Íslenskan
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Íslenskan er aðalmálið
Framsókn leggur ríka áherslu á að varðveita íslenskuna og þróa tungumálið til framtíðar. Brýnt er að tryggja framkvæmd aðgerðaáætlunar í málefnum íslenskrar tungu. Leiðarstef í aðgerðunum er að bæta aðgengi og gæði íslenskukennslu, stuðla að auknum sýni- og heyranleika tungumálsins og aukinni samvinnu um það samfélagslega verkefni að tryggja viðspyrnu íslenskunnar til framtíðar.
Framsókn telur að íslensk stjórnvöld þurfi að móta og innleiða fjárhagslega hvata, svo sem skattfrelsi eða aðrar ívilnanir, sem geri eldri borgurum og eftir atvikum öðrum einstaklingum kleift að veita innflytjendum þjálfun í íslenskri tungu og taka þátt í samtalsverkefnum sem miði að því að efla færni þeirra í íslensku.
Framsókn telur mikilvægt að styðja íslenskukennslu innflytjenda og tryggja að nýir íbúar landsins öðlist grunnfærni í íslensku innan tiltekins tíma. Jafnframt verði nýjasta tækni nýtt til að bjóða upp á íslenskukennslu m.a. gegnum snjallforrit eða aðra stafræna tækni.
Framsókn vill bæta aðgengi að orðabókum og gagnasöfnum með sérstakri íslenskugátt sem höfðar sérstaklega til ungs fólks og þeirra sem læra íslensku sem annað tungumál.
Handritin og íslenskan fengu langþráð heimili í Eddu - Húsi íslenskunnar. Framsókn vill gera menningararfi þjóðarinnar hátt undir höfði og vinna að því að handrit og önnur menningarverðmæti erlendis skili sér í auknum mæli heim til Íslands. Tryggja þarf varðveislu, miðlun, stafræna endurgerð og rannsóknir á þessu sviði.
Íslenskt táknmál
Framsókn vill að hlúa að íslensku táknmáli sem er eina opinbera minnihlutamál á Íslandi.
Framsókn telur brýnt að vinna markvisst eftir nýrri málstefnu fyrir íslenskt táknmál og hrinda aðgerðaáætlun hennar í framkvæmd til að efla, varðveita og stuðla að þróun táknmálsins til framtíðar.
Framsókn telur að aukin þjónusta við táknmálsfólk geri því kleift að taka fyllri þátt í samfélaginu en ella og styðja við jafnari tækifæri fyrir öll sem reiða sig á íslenskt táknmál til tjáningar og samskipta.
Framsókn vill auka námsefnisútgáfu og aðgengi að táknmálskennslu.
Íslenska, máltækni og gervigreind
Framsókn vill tryggja framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi með uppbyggingu, viðhaldi og hagnýtingu máltækniinnviða. Í fyrstu máltækniáætlun stjórnvalda var fjárfest gríðarlega í þróun tæknilegra innviða sem er undirstaða þeirra tæknilausna sem eru að koma fram á markaði í dag og eru aðgengilegar á íslensku. Með nýrri máltækniáætlun er stutt við fyrirtæki í því verkefni að þróa tæknilausnir sem skilja og tala íslensku.
Framsókn telur mikilvægt að vinna stöðugt að því í síbreytilegu umhverfi að gera íslenskuna aðgengilega í snjalltækjum og afþreyingarefni í víðtæku samstarfi við alþjóðleg tæknifyrirtæki. Íslendingar eiga að geta notað nýjustu tækni á íslensku, nýtt sér þjónustu fyrirtækja á íslensku og talað við tæknina á íslensku.
Framsókn telur þróun gervigreindar og hvernig henni mun vinda fram vera eitt stærsta verkefni samtímans. Huga þarf að umgjörð og stefnumótun í málefnum máltækni og gervigreindar til framtíðar. Það skiptir máli að Ísland verði gerandi og taki virkan þátt í þróun og innleiðingu yfirstandandi tæknibreytinga til að sjálfvirknivæðingin stuðli að auknum hagvexti og skili okkur bættum lífskjörum á okkar forsendum.
Framsókn leggur áherslu á að hugað sé að siðferðislegum álitaefnum og samfélagslegum áskorunum sem fylgja nýrri tækni og sjálfvirknivæðingu starfa. Kortleggja þarf hvernig vinnumarkaðurinn muni breytast og bjóða upp á menntun sem styður við þessa þróun.
Framsókn vill stofna miðstöð máltækni og gervigreindar með hliðsjón af norrænum fyrirmyndum. Hlutverk hennar er að vera miðstöð fyrir rannsóknir, þróun, miðlun og hagnýtingu innviða.
Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.