Farsæld og jöfnuður

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um mennta- og barnamál

PDF

Flokksþingsályktun um mennta- og barnamál

PDF

Orange Flower


  1. Gott og fjölbreytt menntakerfi er mælikvarði á styrkleika hvers samfélags. Öflugt menntakerfi auðgar samfélagið og er drifkraftur framfara og þróunar m.a. þegar horft er til fjölbreytts atvinnulífs þjóðarinnar. Fátt skiptir okkur meira máli en börnin okkar og velferð þeirra. Því er fjárfesting í okkar mikilvægustu borgurum,  börnunum okkar og farsæld þeirra eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar.  

  2. Undanfarin ár hafa verið stigin skref í að samræma alla vinnu og þjónustu við börn, utanumhald sem tryggja á betri og heildstæðri nálgun og þar með auka farsæld barna og ungmenna. En það er ekki nægilegt að útbúa rammann, öll kerfi verða að vinna saman og nauðsynleg þjónusta verður að fylgja með alla leið. Það hefur verið lagt upp með samvinnu allra kerfa til þess að búa börnum okkar eins góða framtíð og möguleg er. Það er á ábyrgð stjórnvalda að hlúa að menntakerfinu og horfa á það sem eina heild. Tryggja samfellu í þjónustu og innihaldi náms á milli skólastiga - það er þjóðþrifamál. Það er mjög aðkallandi að til staðar sé nægilegt fjármagn til skóla, frístundastarfs, íþróttamála, fjölbreyttra stuðningsúrræða og svo mætti áfram telja. 

Farsæld og jöfnuður 

  1. Framsókn leggur áherslu á að stytta verulega biðtímann eftir greiningu barna. Í því samhengi er snemmtæk íhlutun lykilþáttur. Þá þarf að tryggja að viðeigandi úrræði séu til fyrir öll börn sem glíma við líkamlega eða andlega fötlun, geðrænan vanda eða fíknivanda og aðstandendur þeirra 

  2. Framsókn vill efla samfélagsvitund hjá ungu fólki og styðja við möguleika þess að fá að taka þátt í fjölbreyttum samfélagsverkefnum sem meta mætti til eininga í námi 

  3. Framsókn telur að ekki sé nógu vel hlúð að ungu fólki frá 16 til 30 ára. Það er gríðarlega mikið í húfi fyrir samfélagið í heild að lagst sé á eitt við að halda börnum og ungu fólki í virkni. Til þess þarf að efla úrræði og snemmtæka íhlutun á öllum skólastigum og þvert á öll kerfi. 

  4. Framsókn vill að gerð sé sérstök ungmennastefna fyrir Ísland. 

  5. Framsókn leggur til að aðalnámskrár leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskóla verði endurskoðaðar og samrýmdar til að auka og bæta samfellu í námi barna.