Félagsstarfs og íþrótta- og æskulýðsstarf
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og ungmennahús
Framsókn vill lögfesta starfsemi félagsmiðstöðva.
Framsókn vill fjölga ungmennahúsum og virkni úrræðum fyrir ungmenni á aldrinum 16-30 ára.
Framsókn leggur áherslu á að félagsmiðstöðvar haldi úti öflugu sértæku hópastarfi, í samræmi við þarfir hverju sinni.
Framsókn vill tryggja að hinsegin ungmenni eigi öruggan samverustað svo sem hinsegin félagsmiðstöðvar. Mikilvægt er að stutt sé við slíkt starf á landsvísu og því tryggt fjármagn
Framsókn leggur áherslur á vettvangsstarf félagsmiðstöðva mikilvægt og vill tryggja starfsemi flakkandi félagsmiðstöðva, sem spila lykilhlutverk í kortlagningu áhættuhegðunar unglinga.
Framsókn vill efla félagsmiðstöðvarstarf fyrir 10-12 ára börn.
Framsókn vill að öll börn á yngsta stigi grunnskóla hafi greitt aðgengi að frístundarheimilum.
Framsókn vill fjölga faglærðu starfsfólki á frístundarheimilum og bæta starfsaðstæður þess
Íþrótta- og æskulýðsstarf
Framsókn vill að lögð sé aukin áhersla á almenningsíþróttir, forvarnarhlutverk þeirra og aukna fjárfestingu í lýðheilsu.
Framsókn leggur áherslu á að auka stuðning við grasrótarstarf íþrótta og ungmennafélaganna í landinu.
Framsókn vill stórauka fjármagn til afreksstarfs í íþróttum. Gera þarf sérsamböndum íþróttahreyfingarinnar kleift að bjóða upp á jafnt aðgengi að afreksstarfi óháð búsetu og efnahag og tryggja þannig að iðkendur sem keppa fyrir Íslands hönd beri ekki kostnað af því. Tryggja þarf fjárhagslega getu til þess að halda úti afreksstarfi.
Framsókn vill jafna aðgengi að íþróttum óháð búsetu. Nauðsynlegt er að lækka kostnað sem hlýst af ferðalögum vegna íþróttaiðkunnar og keppnisferða.
Framsókn vill auðvelda aðgengi fatlaðra barna að íþrótta- og æskulýðsstarfi, koma á hvötum til almennra íþróttafélaga til að vera með æfingar fyrir þennan hóp eða auka aðgengi þeirra að almennum æfingum
Framsókn vill auðvelda aðgengi barna með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn að íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Framsókn vill að lokið verði hið fyrsta við byggingu þjóðarhallar, uppbyggingu þjóðarleikvangs í knattspyrnu í Laugardal, þjóðarleikvangs í frjálsum íþróttum og unnið sé að áframhaldandi uppbyggingu annarra þjóðarleikvanga.
Framsókn vill styðja enn frekar við uppbyggingu hugaríþrótta s.s. bridge, skák og rafíþrótta m.a. með stofnun afrekssjóðs.