Framhaldsskólar
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Framhaldsskóli
Framsókn vill að skólaþjónusta verði stórefld í framhaldsskólum og skólum verði gert kleift að koma til móts við þarfir nemenda.
Framsókn telur að endurhugsa þurfi fjárveitingar til framhaldsskóla á grundvelli þjónustuþarfa nemenda.
Framsókn vill fá heimavist á höfuðborgarsvæðið og á öðrum stöðum sem þörf er á fyrir framhaldsskólanemendur.
Framsókn vill fjölga sérsniðnum íslenskubrautum í framhaldsskólum og stórauka útgáfu námsgagna fyrir nemendur á framhaldsskólaaldri með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn.
Framsókn vill auka áherslu á vettvangsnám og starfsþjálfun.
Framsókn vill, í anda farsældarlaganna, að stuðningur verði aukinn við nemendur svo draga megi úr brotthvarfiúr framhaldsskólum. Framsókn vill einnig að umhverfi, eftirfylgni og úrræði barna sem hverfa frá námi sé eflt til muna. Framsókn vill bæta samstarf framhaldsskóla og sveitarfélaga til að bregðast við brotthvarfi.
Framsókn vill að aðstaða til verk- og starfsnáms verði stórefld til að mæta aukinni aðsókn.
Framsókn vill að allir framhaldsskólar bjóði upp á starfsbrautir.
Framsókn vill að gerð verði ábatagreining á styttingu framhaldsskólans.