Grunnskóli
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Grunnskóli
Framsókn vill sjá lífsleikni sem sér námsgrein í aðalnámskrá grunnskóla. Með meiri áherslu meðal annars á forvarnir, gagnrýna hugsun, borgaravitund, kynjafræði, kynfræðslu og fjármálalæsi.
Framsókn vill að ríki og sveitarfélög standi sameiginlega að reglulegu ytra mati á starfsemi grunnskóla
Framsókn vill að skólaþjónusta sé stórefld, kennarar fái þann stuðning sem þörf er á og að nemendum sé mætt á þeirra forsendum.
Framsókn vill að öll börn í grunnskólum fái jöfn tækifæri til menntunar.
Framsókn vill tryggja grunnskólum fjölbreytt verkfæri til inngildingar.
Framsókn styður við framgang samræmds námsmats.
Framsókn vill stórefla námsgagnagerð og nýtingu tæknilausna til miðlunar. Nauðsynlegt er að sett séu skýr og gagnsæ gæðaviðmið sem hægt er að styðjast við þegar kemur að þróun námsgagna.
Framsókn vill tryggja fjármagn til að stórauka námsgagnakost grunnskóla.
Framsókn vill að horft sé til aukinnar nýsköpunar og þýðinga á fjölbreyttu námsefni til að auka enn frekar framboð efnis til að mæta þörfum ólíkra nemenda hópa.
Framsókn telur að endurskoða þurfi stöðu tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum með það að markmiði að efla hana
Framsókn vill að nemendum sé tryggð fullnægjandi kennsla í list-, verk- og tæknigreinum auk kynningar á framboði til framhaldsnáms í þessum greinum.
Framsókn vill efla starfsþróun og símenntunar möguleika kennara.
Framsókn telur að það sé samfélagslegur hagur í að kenna grunn í táknmálsfræðum.
Framsókn vill tryggja að skólasókn sé skráð á samræmdan hátt. Jafnframt hafi skóla yfir að ráða raunhæfum aðgerðum til að styðja við nemendur ef skólasókn er ábótavant
Framsókn vill tryggja að mennatastefnunni “Skóli án aðgreiningar” fylgi næg þjónusta og stuðningur svo hún verði ekki börnum til aðgreiningar.
Framsókn vill auka aðgengi að stoðþjónustu fyrir nemendur og kennara.
Framsókn styður símafrí í grunnskólum landsins sem miðar að því að gefa börnum frí frá snjallsímum í einkaeigu á skólatíma. Framsókn leggur áherslu á tæknilæsi og tryggt sé að tækni sem skólinn útvegar sé markvisst nýtt til náms.