Háskólar og símenntun

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um mennta- og barnamál

PDF

Flokksþingsályktun um mennta- og barnamál

PDF

Orange Flower

Háskóli 

  1. Framsókn vill að háskólastarf uppfylli alþjóðleg gæðaviðmið. 


  2. Framsókn vill tryggja öllum jöfn tækifæri til háskólamenntunar óháð búsetu eða aðstæðum.   


  3. Framsókn telur að hækka þurfi frítekjumark Menntasjóðs námsmanna í samræmi við verðlags- og launaþróun. Einstaklingar eiga ekki að verða fyrir skerðingum vinni þeir með námi. 


  4. Framsókn leggur áherslu á fjölþættar aðgerðir til styrktar íslenskunni bæði fyrir þá sem læra íslensku sem fyrsta og annað mál. Því er mikilvægt að á háskólastiginu sé unnið að þekkingaröflun um íslenskuna, kennslufræði íslenskunnar, þekkingarmiðlun til kennara á öllum skólastigum og beinni kennslu í íslensku.  


  5. Framsókn vill skilvirkari vinnu við mat á menntun úr erlendum háskólum, sem og á starfsréttindum. 


  6. Framsókn vill virkja möguleikann á að nýta hvatakerfi innan Menntasjóðs námsmanna. 


  7. Framsókn vill efla símenntunarmiðstöðvar og þekkingarsetur í landsbyggðunum þannig að þau geti stutt enn betur við háskóla landsins með þjónustu við fjarnema í samstarfi við háskóla og fagstofnanir viðkomandi svæðis. 


  8. Framsókn vill tryggja gott aðgengi að öllum stigum háskólanáms  með fjar- og dreifnámi. 


  9. Framsókn vill auka fjölbreytni námsframboðs á háskólastigi í takt við þarfir samfélagsins hverju sinni. 


  10. Framsókn vill auka möguleika nemenda á starfsnámi í tengslum við sitt fag á háskólastigi. 

Símenntun  

  1. Framsókn styður og vinnur að eflingu framhaldsfræðslu sem fimmtu stoðar menntakerfisins og leggur áherslu á að fullorðið fólk hafi aðgang að náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimati og fjölbreyttu námi með vinnu, hjá viðurkenndum símenntunarmiðstöðvum um allt land. 


  2. Framsókn leggur áherslu á jafnrétti til náms og að allt fullorðið fólk eigi kost á menntun alla ævi. 


  3. Framsókn vill styrkja símenntunarsjóði og símenntunarkerfi til að bregðast við áskorunum sjálfvirkni og tækniþróunar.