Leikskóli og fæðingarorlof
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Leikskóli og fyrstu árin
Framsókn ætlar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Framsókn vill að fæðingarorlof verði lengt í 18 mánuði.
Framsókn telur að styðja þurfi betur við námsmenn sem eignast börn á meðan námi stendur eða að því nýloknu t.a.m. með hækkun fæðingarstyrks og rýmkun á reglum um útreikning fæðingarorlofs með tilliti til námsloka og breyttrar tekjuöflunar.
Framsókn vill meiri sveigjanleika að hálfu vinnumarkaðarins til að geta tekið fæðingarorlof að hluta á móti vinnu.
Framsókn vill að greidd séu full laun til foreldra í fæðingarorlofi og samhliða sé hámarksupphæð endurmetin og lágmarksupphæð ákvörðuð í samræmi við lágmarksframfærslu.
Framsókn vill styðja betur við fjölburaforeldra í fæðingarorlofi og að því loknu.l
Framsókn vill að fæðingarorlof sé réttur barnsins og foreldrum sé treyst til að haga töku þess eins og hentar hverri fjölskyldu, þó með einhverjum sjálfstæðum rétti hvers foreldris.
Framsókn vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi.
Framsókn vill koma á leiksskólaskyldu barna frá 4 ára aldri og samhliða sé tryggt fjármagn til sveitarfélagana frá ríkinu.
Framsókn vill lögfesta heimildir til sveitarfélaga til að setja reglur um systkinaforgang við innritun í leikskóla.
Framsókn telur að bæta þurfi vinnuaðstæður starfsfólks í leikskólum og draga úr álagi.
Framsókn vill bæta náms- og leikgagnakost leikskólanna til að létta undir álagi og auðvelda faglegt starf.
Framsókn vill tryggja fjármagn til að auka leik- og námsgangakost til að efla fagleg starf í leikskólum.
Framsókn vill grípa til aðgera til að fjölga faglærðu starfsfólki í leikskólum.
Framsókn vill að gerð séu viðmið um íslenskukunnáttu starfsfólks í leikskólum. Jafnframt þarf að bjóða upp á gjaldfrjálsa íslenskukennslu á vinnutíma.