Stjórnskipan

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um stjórnskipan

PDF

Flokksþingsályktun um stjórnskipan

PDF

Lilac Flower

Stjórnskipan

Endurskoðun stjórnarskrárinnar  

  1. Framsókn bendir á að endurskoðun stjórnarskrárinnar er mikilvægt verkefni sem verður að ráðast í og ná sátt um meðal þjóðarinnar. Þar á meðal ákvæði um forseta, þjóðaratkvæðagreiðslu, auðlindir og fleira.  


Forseti Íslands 

  1. Framsókn vill að meðmælafjöldi vegna forsetaframboðs verði hækkaður.   


Kosningaréttur 

  1. Framsókn leggur til að kosningaréttur miðist við byrjun þess árs sem einstaklingur nær kosningaaldri en ekki fæðingardag.  


Íbúalýðræði 

  1. Framsókn vill efla lýðræðislega þátttöku íbúa, m.a. með auknu íbúalýðræði og virkjun ólíkra hópa í gegnum hverfis-, ungmenna-, öldunga- og nýbúaráð. 


  2. Framsókn telur mikilvægt að leita leiða til að fá íbúa til að taka meiri þátt í stefnumótun í nærsamfélaginu, þá sérstaklega fólk af erlendum uppruna.  


  3. Framsókn bendir á að þátttaka í sveitarstjórnarmálum gefi almenningi raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt. 


  4. Framsókn leggur áherslu á að huga að starfsaðstæðum kjörinna fulltrúa og bæta þær þar sem þörf er á. 


 Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.