Þjóðaröryggi

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um stjórnskipan, mannréttindi, málefni innflytjenda og alþjóðamál

PDF

Flokksþingsályktun um stjórnskipan, mannréttindi, málefni innflytjenda og alþjóðamál

PDF

Flokksþingsályktun um stjórnskipan, mannréttindi, málefni innflytjenda og alþjóðamál

PDF

Lilac Flower
Lilac Flower
Lilac Flower

Þjóðaröryggi og almannavarnir - Samfélagsöryggi

Framsókn leggur áherslu á að unnið sé eftir nýsamþykktri þjóðaröryggisstefnu frá 28. febrúar 2023 sem tryggir sjálfstæði, fullveldi og friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna, orkuöryggi, fæðuöryggi, vernd stjórnkerfis og innviði samfélagsins.

Í þjóðaröryggisstefnunni endurspeglast breið sýn á þjóðaröryggi; að öryggi tekur til fjölþættari ógna, hvort sem um er að ræða innri eða ytri ógnir, af mannavöldum eða vegna náttúruhamfara.

Framsókn vill að gerði verði stefna vegna náttúruhamfara sem marki hvernig hægt sé að takast á við náttúruhamfarir til langs tíma og tryggi aðkomu sveitarfélaga, stofnanna og annarra sem málið varða.

Nýlegar aðgerðir vegna eldgosa á Reykjanesskaga hafa varpað ljósi á nauðsyn þess að efla utanumhald um mikilvæga innviði s.s. vegi, húsnæði, rafmagn, hitaveitu og flug. Þá hafa ógnir af netárásum á opinbera starfsemi, fyrirtæki og einstaklinga aukist og stríð í heiminum eru að magnast.

Framsókn telur þjóðfélagslega mikilvægt að efla uppbyggingu nauðsynlegra innviða til að tryggja gagnaöryggi hérlendis.

Við endurskoðun laga um almannavarnir skal tryggja að fyrir liggi hvar sá kostnaður sem fellur til vegna ráðstafana í almannavarnaástandi fellur.

Þekking og þjálfun forystuaðila samfélagsins tryggð

Framsókn vill að þekking þeirra sem eru í forystu fyrir samfélagið (t.d. ráðherrar, ráðuneytisstjórar, sveitarstjórar og sveitarstjórnarfólk) á aðgerðum vegna samfélagsraskana verði efld. Þá leggur Framsókn áherslu á að það verði búnar til trúverðugar áætlanir og stefnur um hvernig grípa eigi til aðgerða til þess að tryggja öfluga og skilvirka endurreisn, t.d. enduruppbygging innviða og lífsviðurværi.

Þá er mikilvægt að reynsla þeirra forystuaðila sem hafa tekist á við samfélagsröskun sé tekin saman og samráðsvettvangur stofnaður í þeim tilgangi að unnt verði að miðla með skipulögðum hætti reynslu og þekkingu milli aðila.

Aukin áhersla á sjónarmið þolenda hamfara tryggð

Framsókn leggur áherslu á að ný lög um samfélagslegt öryggi taki tillit til hagsmuna og sjónarmiða þolenda hamfara þegar á reynir og við endurreisn. Sjónarmið þolenda skulu vera í forgrunni vegna viðbúnaðar, aðgerða og uppbyggingar samfélags. Einstaklingar og fjölskyldur verða fyrir mismikilli röskun þegar röskun verður í samfélagi þeirra. Sumir t.d. upplifa óþægindi við að þurfa að rýma húsin sín en mega flytja heim aftur, á meðan að aðrir missa allt sitt. Óvissa er þolendum erfið og skal lágmarka hana með því að efla utanumhald um þolendur.