Iðnaður og orka
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Iðnaður og orka
Framsókn vill að Ísland verði áfram í fararbroddi er kemur að þróun endurnýjanlegra orkugjafa.
Framsókn vill að Ísland verði fremst er kemur að orkuskiptum. Innlendar auðlindir eru þar verulegt forskot og ber að nýta með ábyrgum hætti.
Framsókn telur að nýta eigi þá orku sem framleidd er hérlendis til innlendrar verðmætasköpunar og eflingar samkeppnishæfni Íslands á alþjóðamarkaði.
Framsókn telur mikilvægt að tryggja afhendingaröryggi rafmagns um allt land. Raforka er undirstaða fjölbreytts atvinnulífs, lífsgæða og verðmætasköpunar um allt land.
Framsókn vill tryggja að stjórnvöld ýti undir nýsköpun og fjárfestingu á sviði endurnýjanlegrar orku, enda er framþróun á þessu sviði og orkuskipti grundvöllur hagvaxtar í jafnvægi við umhverfið. Framsókn vill leggja sitt að mörkum til að hraða fyrir þessum breytingum.
Framsókn telur mikilvægt að stutt sé við fjölbreytta þróun á endurnýjanlegri orku. Orkunýting eykst í takt við aukna tæknivæðingu heimsins.
Framsókn leggur áherslu á að mörkuð verði skýrari stefna með það að markmiði að auka nýsköpun þegar kemur að auðlindanýtingu. Fjárfesting í nýsköpun á grundvelli auðlindanýtingar er vænlegri til byggðafestu og mun tryggja störf í hinum dreifðu byggðum.
Framsókn vill að Ísland verði áfram í fararbroddi er kemur að þróun endurnýjanlegra orkugjafa en íslenskt hugvit hefur leitt til þess að Ísland er í fremstu röð er kemur að nýtingu hennar. Endurnýjanleg orka úr auðlindum landsins skapar samkeppnisforskot og ber að nýta með ábyrgum hætti.
Orkumál
Framsókn leggur áherslu á að orkuframleiðsla stuðli að orkuskiptum og aukinni verðmætasköpun um allt land. Jafnframt þarf að horfa á nýtni og nýsköpun til að fá sem mest fyrir auðlindir okkar hverju sinni og skapa fjölbreytt atvinnutækifæri. Tryggja þarf orkuöryggi fyrir heimilin í landinu sérstaklega og endurskoða löggjöf raforkumála svo að flutningskostnaður sé hagkvæmur öllu landinu. Jafna þarf dreifikostnað að fullu, svo að allir íbúar Íslands sitji við saman borð. Rannsaka þarf hafsbotn Íslands til að meta mögulega vannýttar orkuauðlindir sem geta skapað tækifæri til framtíðar.
Framsókn leggur áherslu á að sala þjóðhagslega mikilvægra raforkufyrirtækja s.s. Landsvikjunar, Landsnets og Rarik komi ekki til greina og leggst alfarið gegn beinum útflutningi raforku.
Vegna stærðar sinnar og þjóðhagslegs mikilvægis gegnir Landsvirkjun lykilhlutverki í orkuskiptum.
Framsókn leggur áherslu á innlent eignarhald orkuauðlindanna og að endurskoða þurfi löggjöf vindorku, löggjöf um jarðakaup og önnur lög til að svo verði. Jafnframt þarf að tryggja að arður af orkuauðlindum renni til þjóðarinnar og setja á upp auðlindasjóð, sambærilegan því sem Norðmenn eiga. Þannig má spara fyrir mögru árin og fjárfesta til framtíðar.
Framsókn telur mikilvægt að unnið verði eftir markvissri stefnu um orkuskipti í samgöngum og stutt verði við fjölbreytta framleiðslu innlendra og grænna orkugjafa fyrir samgöngur: rafmagn, rafeldsneytis og metan. Stutt verði vel við rannsóknir og nýsköpun á umhverfisvænum orkugjöfum.
Græn, endurnýjanleg orka
Framsókn telur það umhverfismál að markvisst sé unnið að fullnaðarnýtingu núverandi orkukosta. Framsóknarflokkurinn styður auknar virkjanir og hagnýtingu náttúruauðlinda til að tryggja nægilegt framboð orku fyrir orkuskipti, atvinnuuppbyggingu og sjálfbæra þróun samfélagsins. Í lögum verði svigrúm sem styður rekstraraðila smávirkjana til þess að fjárfesta í fullnaðarnýtingu smávirkjanna m.a. með hliðsjón af auknum tækniframförum í raforkuframleiðslu.
Framsókn hefur forgöngu um að mótuð verði ábyrg stefna um uppbyggingu vindorku.
Stóriðja
Framsóknarflokkurinn stendur skýrt með íslenskum iðnaði og metnaðarfullri framtíðaruppbyggingu hans. Öflugur og samkeppnishæfur iðnaður, byggður á ábyrgu og tryggu aðgengi að orku, er lykilforsenda sjálfbærni, efnahagslegs sjálfstæðis og öryggis landsins. Skýr stefna í orkumálum styrkir samkeppnisstöðu Íslands, eykur verðmætasköpun og tryggir vel launuð, traust störf um allt land.
Framsókn leggur áherslu á umhverfis- og loftslagssjónarmið, hagkvæma nýtingu auðlinda og tryggt orkuöryggi.
Grænn iðnaður
Framsókn telur mikilvægt er að grænn iðnaður verði efldur frekar hér á landi. Þannig má styðja við sjálfbærni með hringrásarhugsun að leiðarljósi og bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða.
Framsókn telur að mögulegur ávinningur af grænum iðngörðum geti verið margvíslegur. Má þar nefna minni notkun hráefna, s.s. vatns, orku, efna, minni úrgang vegna aukinnar hringrásar, minni losun gróðurhúsalofttegunda og mengunar ásamt lækkuðum rekstrarkostnaði og bættri skilvirkni við framleiðslu.
Byggingariðnaður
Framsókn vill einfalda regluverk og skýra ferla til að lækka byggingarkostnað án þess að slá af kröfum um gæði og öryggi mannvirkja og heilnæmi bygginga.
Framsókn telur að kröfur sem gerðar eru til byggingaraðila eigi að taka mið af umfangi framkvæmda og tegund bygginga.
Framsókn vill nýta nýja tækni og lausnir á borð við einingar og einingahús til að hraða uppbyggingu.
Framsókn vill tryggja nýliðun og menntunartækifæri í byggingariðnaði um allt land t.d. með eflingu skóla sem bjóða upp á iðn- og tækninám og fjölgun plássa fyrir þá nemendur sem hyggjast afla sér iðnmenntunar.
Framsókn telur mikilvægt að byggingariðnaðurinn fylgi kröfum, alþjóðlegum stöðlum og viðmiðum sem snúa að sjálfbærni og loftslagsmálum.
Framsókn vill horfa til lausna á lóðaskorti og miklum kostnaði lóða. Stjórnvöld þurfa að tryggja nægjanlegt framboð lóða til lengri tíma og koma í veg fyrir tilvik þar sem lóðir ganga ítrekað kaupum og sölu áður en nokkur framkvæmd á sér stað.
Framsókn telur brýnt að koma í veg fyrir að byggingakostnaður, og markaðsverð íbúðarhúsnæðis í kjölfarið, hækki mikið vegna annarra atriða en efniskostnaðar og kostnað við vinnu, þ.e. vegna aukagjalda til ríkis og sveitarfélaga á byggingartíma.
Framsókn telur nauðsynlegt að stjórnvöld tryggi nauðsynlega innviði á svæðum þar sem nýbyggingar rísa, sérstaklega hvað varðar rafmagn, vatn og aðrar grunnþarfir.
Frumframleiðsla í iðnaði
Framsókn vill að boðið verði upp á fjárfestingastuðning eða lán fyrir sprota og nýsköpunarfyrirtæki til að fjárfesta í tækjum og búnaði sem stuðla að aukinni atvinnuþróun þegar kemur að frumframleiðslu.
Hugverkaiðnaður, nýsköpun, frumkvöðlar, rannsóknir og vísindi
Hugverkaiðnaður og hátækniþróun
Framsókn vill að stjórnvöld gangi í aðgerðir með það að markmiði að starfrækja eftirlit með mögulegum brotum á íslensku hugverki ásamt því að aðstoða frumkvöðla, framleiðendur og höfunda við að sækja rétt sinn þegar brotið er gegn hugverkarétti þeirra.
Framsókn vill að stjórnvöld aðstoði einstaklinga og lögaðila við að tryggja að vörur þeirra og þjónusta njóti sérstöðu á alþjóðamarkaði með nýtingu laga og reglna á sviði hugverkaréttar.
Framsókn vill að tryggt sé að fræðsla um hugverkaréttindi og vernd þeirra standi öllum til boða. Meðal markmiða slíkrar fræðslu væri að kynna fyrir þeim sem það sækja hvernig hægt er að tryggja vernd á hugverki sínu áður en það er of seint, t.d. hvað varðar einkaleyfi og vörumerkjavernd.
Framsókn vill að ýtt sé undir aukna framþróun á því sviði hér á landi til að tryggja aukna hagsæld þjóðarinnar til lengri tíma.
Framsókn vill að tryggt verði jafnt aðgengi að hátækninámi.
Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.