Líf og heilsa
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Heilbrigðismál
Framsókn leggur áherslu á að standa vörð um öflugt, opinbert heilbrigðiskerfi sem tryggir jafnt aðgengi að þjónustu um land allt.
Framsókn setur lýðheilsusjónarmið í forgrunn allrar stefnumörkunar í heilbrigðismálum.
Framsókn telur að aukið vægi endurhæfingar, forvarna og heilsueflandi aðgerða sé lykill að bættri lýðheilsu og sjálfbærni kerfisins.
Heilbrigðisþjónusta
Framsókn leggur áherslu á aukna samvinnu og skilvirkni innan kerfisins við veitingu heilbrigðisþjónustu og að þjónustutengd fjármögnun verði innleidd í auknum mæli.
Framsókn leggur áherslu á að skilvirk þjónustukaup og samningar við þjónustuveitendur gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu í blönduðu heilbrigðiskerfi.
Framsókn vill tryggja samfellu í þjónustu þar sem úrræði taki hnökralaust við af hvort öðru, bæði milli þjónustustiga og kerfa.
Framsókn telur að tækifæri séu til að auka aðgengi að ýmis konar sérfræðiþjónustu óháð búsetu með því að innleiða fjarheilbrigðisþjónustu í gegnum fjarskiptabúnað í auknum mæli.
Framsókn vill efla forvarnir og heilsueflandi úrræði fyrir alla aldurshópa.
Framsókn vill að störf í heilbrigðisþjónustu verði kynnt betur til að laða fólk að námi og störfum og tryggja fjölgun heilbrigðisstarfsfólks og námsplássa um land allt. Framsókn vill leggja áherslu á að efla starfsöryggi heilbrigðisstarfsfólks.
Framsókn vill halda áfram að stuðla að umbótum í starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks, styðja við nýsköpun og vísindi og stuðla að framþróun þjónustunnar.
Framsókn leggur áherslu á að mikilvægt sé að halda áfram á þeirri vegferð að efla sérnám lækna hér á landi og að fjöldi námsplássa á heilbrigðisvísindasviði endurspegli þörf samfélagsins til framtíðar.
Framsókn telur brýnt að leita allra leiða til að styrkja mönnun á landsbyggðinni og vinna áfram að því að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Til að styðja við mönnun í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni leggur Framsókn áherslu á að virkja ákvæði í lögum um menntasjóð námsmanna um ívilnanir og endurgreiðslu námslána á skilgreindum svæðum.
Framsókn telur mikilvægt að efla þjónustu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustað þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og tryggja tímanlegt aðgengi að þjónustunni. Áfram þarf að efla samvinnu milli stofnana og landsvæða til að tryggja viðeigandi mönnun og þjónustu út um allt land.
Framsókn telur brýnt að áfram verði unnið að því að stytta bið eftir lýðheilsutengdum aðgerðum s.s. liðskiptaaðgerðum, augasteinaaðgerðum, aðgerðum við endómetríósu, bakaðgerðum sem og öðrum aðgerðum sem skerða lífsgæði og virkni einstaklinga.
Framsókn telur einnig brýnt að tryggja að blóðgjöfum sé ekki mismunað vegna fordóma og unnið sé út frá einstaklingsmiðaðri áhættugreiningu.
Framsókn leggur áherslu á mikilvægi þess að koma aðgerðum í aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi til framkvæmda. Fyrirsjáanlegt er að aukið sýklalyfjaónæmi mun valda erfiðleikum við meðhöndlun ýmissa sjúkdóma og sýkinga, auka dánartíðni og auka kostnað í heilbrigðiskerfinu.
Aðgengi að heilbrigðisþjónustu
Framsókn vill jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Framsókn leggur áherslu á að aukin sérfræðiþjónusta sé veitt í heimabyggð.
Framsókn vill efla utanspítalaþjónustu.
Framsókn vill efla sjúkraflutninga og tryggja lágmarks viðbragðstíma.
Framsókn leggur áherslu á að styrkja heilbrigðisstofnanir landsbyggðarinnar.
Framsókn vill hraða uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu og einfalda lagaumhverfi.
Geðheilbrigðisþjónusta
Framsókn vill efla 1. stigs geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar.
Framsókn telur brýnt að byggja áfram upp og styrkja geðheilsuteymi á landsvísu.
Framsókn leggur áherslu á að nýtt húsnæði geðdeildar Landspítala verði forgangsverkefni.
Framsókn leggur áherslu á að stytta verulega biðlista barna og ungmenna eftir þjónustu. .
Framsókn telur mikilvægt að fjölga endurhæfingarúrræðum fyrir fólk með geðræn veikindi.
Framsókn hefur áhyggjur af sjálfsvígum á Íslandi og leggur áherslu á að grípa verði til róttækra aðgerða til að efla forvarnir. Mikilvægt er að styrkja geðheilbrigðiskerfið, efla lýðheilsu, tryggja aðgengi að sálfræðiþjónustu og auka fræðslu í skólum og á vinnustöðum.
Framsókn leggur áherslu á að ríkisvaldið setji sér mælanleg markmið um styttingu biðlista í geðheilbrigðiskerfinu, sérstaklega fyrir börn og ungmenni.
Dánaraðstoð
Framsókn vill stuðla að opinni og upplýstri umræðu um dánaraðstoð.
Samþætting þjónustu
Framsókn telur að farsældarlögin eigi að vera fyrirmynd á öðrum sviðum til þess að samþætta betur þjónustu og upplýsingaflæði..
Framsókn leggur áherslu á að það eigi að vera gott að eldast á Íslandi.
Framsókn vill aukið átak í að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu milli sveitarfélaga og ríkis.
Framsókn leggur áherslu á að samþætt þjónusta stuðli að því að aldraðir geti lengur notið lífsins á eigin heimili, og fái þjónustu við hæfi í samræmi við auknar þjónustuþarfir í heimabyggð.
Lýðheilsa og forvarnir
Framsókn vill innleiða lýðheilsumat í löggjöf og stefnumótun stjórnvalda í takt við aðgerðaráætlun í lýðheilsu til ársins 2027 um að lýðheilsumat verði hluti af sjálfbærnimati á frumvörpum Alþingis.
Framsókn vill ráðast í þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum.
Framsókn vill stórefla lýðheilsu og forvarnir í heilbrigðiskerfinu og nýta til þess krafta Íþróttasambands Íslands, íþrótta- og ungmennafélaga um allt land, félagasamtaka, heilbrigðisfyrirtækja og líkamsræktarstöðva.
Framsókn vill auka fjárveitingar til Lýðheilsusjóðs enn frekar til að styðja við mikilvæg verkefni á fjölbreyttu sviði lýðheilsu og forvarna.
Framsókn telur brýnt að hraða og útvíkka skipulagðar krabbameinsskimanir í ristli og endaþarmi.
Framsókn vill efla vitund um mikilvægi hreyfingar, svefns, mataræðis og áhrif streitu á andlega líðan.
Áfengis- og vímuvarnir
Framsókn leggur áherslu á skaðaminnkandi nálgun í áfengis- og fíkniefnamálum. Skaðaminnkandi hugmyndafræði á að vera hluti af úrræðum innan heilbrigðiskerfisins í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Skaðaminnkun miðar að því að draga úr skaðlegum afleiðingum hegðunar eða lífsstíls, óháð því hvort hún sé æskileg, lögleg eða ólögleg.
Framsókn telur mikilvægt að vinna að því markmiði að draga úr neyslu áfengis, tóbaks og nikótínvara í takti við áætlanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem fulltrúar Íslands hafa samþykkt. Framsókn telur skynsamlegt að allar nikótínvörur falli undir tóbakslöggjöf stjórnvalda.
Framsókn vill standa vörð um rekstur ÁTVR m.t.t. til lýðheilsusjónarmiða. Framsókn vill að komið verði í veg fyrir að starfsemi innlendra einkaaðila í smásölu áfengis geti starfað undir erlendum rekstrarleyfum, og leggst gegn lögfestingu slíkra heimilda.
Framsókn telur brýnt að auka forvarnir um áfengis- og vímuvarnir. Framsókn telur mikilvægt að vakta vel lýðheilsuvísa embættis Landlæknis og bregðast við óæskilegri þróun þeirra með markvissum og gagnreyndum forvörnum.
Framsókn leggur áherslu á að fjölga þarf meðferðarúrræðum fyrir börn og ungmenni með áfengis og vímuefnavanda nú þegar.
Framsókn vill ráðast í markvissar aðgerðir fyrir ungt fólk á aldrinum 16-29 ára sem eru ekki í námi, vinnu eða virkni (NEET-hópurinn) með áherslu á snemmtækan stuðning og einstaklingsmiðaðar lausnir.
Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.