Almannatryggingar og lyfjamál
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Almannatryggingar
Sjúkratryggingar
Framsókn leggur áherslu á að sjúkratryggingakerfið tryggi raunverulegt heilsuöryggi, óháð búsetu, efnahag eða aðstæðum.
Framsókn leggur áherslu á að sjúkratryggðir einstaklingar hafi jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og búi við heilsuöryggi óháð búsetu og efnahag.
Framsókn leggur áherslu á að samningar séu í gildi um þá þjónustu sem sjúkratryggingar Íslands kaupa fyrir hönd ríkisins.
Framsókn fagnar aukinni greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í ferðakostnaði eftir heilbrigðisþjónustu sem tók gildi á síðasta kjörtímabili. Framsókn telur þörf á frekari greiðsluþátttöku ríkisins til að tryggja að staðið sé undir ferðakostnaði einstaklinga að öllu leyti.
Framsókn telur að vinna eigi að sameiningu greiðsluþátttökukerfis læknisþjónustu og lyfja. Með því er hægt að tryggja að kerfin tali saman og að það sé samfella í þjónustu sem er mikilvægt fyrir fjárhagslegt öryggi sjúklinga. Fólk á aldrei að þurfa að glíma við fjárhagsörðugleika vegna veikinda sinna, barna eða ástvina.
Framsókn vill tryggja hagstæða samninga sjúkratrygginga við sérfræði menntað heilbrigðisstarfsfólks sérfræðilækna til að draga úr kostnaðarsömum ferðalögum sjúklinga.
Lyfjamál
Aðgengi að nauðsynlegum lyfjum er grundvallarþáttur í heilbrigðisþjónustu og hefur bein áhrif á lífsgæði og heilsu fólks. Framsókn leggur áherslu á að lyfjakostnaður verði ekki hindrun fyrir meðferð og að kerfið tryggi bæði jafnræði og öryggi í lyfjaframboði.
Framsókn leggur áherslu á að endurskoða greiðsluþátttöku einstaklinga í lyfjakostnaði sem getur verið íþyngjandi s. Framsókn vill að fjölskyldum verði gert kleift að vera á einu fjölskyldunúmeri og að lyf fjölskyldunnar telji saman upp í greiðsluþátttöku.
Framsókn vill tryggja einstaklingum sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma aðgang að lífsnauðsynlegum lyfjum og meðferð á Íslandi eða þar sem hægt er að sækja slíka meðferð.
Framsókn telur að endurskoða eigi lög og reglugerðir varðandi lyfjainnflutning og samhliðainnflutning á lyfjum. Leita skal leiða til að auka samkeppni á lyfjaheildsölumarkaði. Í þessu samhengi má nefna að heimila ætti öllum lyfjaheildsölum að flytja inn lyf sem eru nú þegar með markaðsleyfi hér á landi. Leita skal leiða til að draga úr kostnaði og einfalda ferlið við nýskráningar á lyfjum til að efla samkeppni og draga úr lyfjaskorti.