Málefni eldra fólks
Samþykkt á 37. Flokksþingi

Málefni eldra fólks
Eldra fólk er virði en ekki byrði og telur Framsókn að í hækkandi aldri þjóðarinnar felist tækifæri því það á að vera gott að eldast á Íslandi.
Framsókn telur mikilvægt að skipaður verði umboðsmaður aldraðra sem hefur meðal annars það markmið að vinna gegn vaxandi ofbeldi gagnvart eldra fólki auk fjölda verkefna í samvinnu við sveitarfélögin.
Heilsuefling og forvarnir
Framsókn vill að lögð verði áhersla á aukinn félagslegan stuðning og skimanir með það að markmiði að hafa verkfæri til að vinna gegn einmanaleika, félagslegri einangrun, kvíða, þunglyndi og aldurstengdum fordómum.
Framsókn vill að farið verði í sérstakt átak til að sporna við einmanaleika eldra fólks.
Framsókn telur brýnt að styðja við fjölbreytta og fjölhæfa endurhæfingu fyrir aldraða. Framsókn stendur heils hugar við bakið á Heilsueflandi samfélag – allt lífið með sérstakri áherslu á virkni, sjálfstæði og vellíðan eldra fólks.
Framsókn vill efla forvarnir á breiðu sviði fyrir eldra fólk og efla vitund um mikilvægi hreyfingar, svefns mataræðis og félagslegrar þátttöku.
Virkni
Framsókn vill að eldra fólk hafi gott aðgengi til að sækja sér virkni óháð búsetu. Mikilvægt er að hvetja til kynninga um það hvaða virkni stendur eldra fólki til boða. Dæmi eru um að eldra fólk sé að sækja sér félagsstarf of seint og því telur Framsókn brýnt að efla starfið einnig fyrir yngra eldra fólk. Virk þátttaka í félagsstarfi lífgar upp á daginn og getur stuðlað að betri andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu.
Framsókn vill hvetja sveitarfélög til samvinnu með félögum eldra fólks og íþrótta- og ungmennafélögum á hverju svæði til að styðja við fjölbreytt félagsstarf og heilsueflingu.
Framsókn vill að stjórnvöld styðji við samstarfsverkefni frjálsra félagasamtaka og eldri borgara sem hafa það markmið að auka þátttöku eldra fólks í fjölbreyttri virkni.
Að vera frjáls ferða sinna er grunnurinn að sjálfstæði einstaklingsins. Framsókn vill tryggja aðgengi eldra fólks að virkniúrræðum og þjónustu með því að gera akstursþjónustu aldraða að lögbundinni þjónustu.
Atvinna
Framsókn vill að eldra fólk hafi kost á sveigjanlegum starfslokum og geti unnið eins lengi og heilsan leyfir sama hver aldurinn er. Mikill auður er í eldra fólki, reynsla og þekking sem er mikilvæg.
Framsókn vill einnig fella niður þá reglu að starfsmönnum hins opinbera í heild sé skylt að hætta störfum við 70 ára aldur. Þeir sem vilja vera virkir á vinnumarkaði áfram eiga að hafa kost á því ef vilji bæði launafólks og vinnuveitanda stendur til þess.
Lífeyristryggingar og lífeyrismál
Framsókn vill að lögð verði áhersla á að leiðrétta hlut eldra fólks sem er í lægstu tekjutíundunum.
Framsókn vill mæta þeim verst stöddu og horfir þá sérstaklega til húsnæðismála, en flest þau sem búa við bág kjör búa í mjög skuldsettu húsnæði eða greiða háa leigu. Framsókn vill sérstaklega að komið verði til móts við eldra fólk á leigumarkaði með sértækum úrræðum. Skoða þarf möguleika á hlutdeildarlánum fyrir eldra fólk. Framsókn vill að farið verði átak í samvinnu við óhagnaðardrifin leigu- og húsnæðissamvinnufélög til að byggja íbúðir fyrir eldra fólk.
Framsókn vill leggja áherslu á styrkingu á millistigi í búsetu þegar þjónustuþörf eldra fólks eykst til að gefa því tækifæri til að búa lengur heima hjá sér en fá þjónustu inn á heimili.
Framsókn vill að almenna frítekjumarkið verði hækkað verulega enda komi það sér best fyrir þau sem búa við lökustu kjörin. Almenna frítekjumarkið verður að fylgja launaþróun. Framsókn vill að sett verði frítekjumark vegna fjármagnstekna eldra fólks varðandi greiðslur frá Tryggingastofnun Ríkisins.
Framsókn vill að grunnlífeyrir verði 90% af lágmarkstaxta á almennum vinnumarkaði.
Samþætt þjónusta á heimili
Framsókn leggur áherslu á að góð samvinna sé á milli velferðarkerfis, heilbrigðiskerfis og félaga eldri borgara þegar kemur að heimaþjónustu og heimahjúkrun. Með því er hægt að ná betur til eldra fólks, tryggja samfellda og einstaklingsmiðaða þjónustu, eyða „gráum svæðum“ í þjónustu og gefa eldra fólki kost á að búa heima eins lengi og hægt er eftir því sem það vill og heilsa leyfir. Með því móti getur það haldið sjálfstæði sínu, reisn og virðingu.
Framsókn telur mikilvægt að halda áfram að tryggja nútímavæðingu þjónustunnar og aðgengi að henni með aukinni notkun á velferðartækni, rafrænni þjónustu, fjarþjónustu og upplýsingagáttum. Við tæknivæðinguna þarf að aðstoða þá sem ekki hafa náð að tileinka sér nútíma upplýsingatækni. Framsókn ítrekar mikilvægi þess að tryggja jafnt aðgengi óháð búsetu að heimaþjónustu og heimahjúkrun.
Dagdvalarrými og dvalarheimili
Framsókn vill að eldra fólk hafi greiðan aðgang að fjölbreyttri þjónustu í dagdvalarrýmum þegar þarfir einstaklinga kalla á slíka þjónustu hvort sem um er að ræða félags- og tómstundastarf í dagúrræðum eða sérhæfðari þjónustu svo sem í hvíldarinnlögn búsetu í dvalarrými.
Framsókn telur einnig mikilvægt að fjölga dagdvalarrýmum, hvíldarrýmum og sérhæfðum dagdvalarrýmum t.d. með heilabilun.
Hjúkrunarheimili
Framsókn leggur áherslu á að fjöldi hjúkrunarrýma í boði í hverju heilbrigðisumdæmi endurspegli þörf svæðisins fyrir rýmin og að biðtími eftir rými sé innan skynsamlegra tímamarka. viðmiða.
Framsókn telur skynsamlegt hraða uppbyggingu nýrra rýma í takt við þörf.
Framsókn vill að áfram verði lögð áhersla á að mæta aukinni hjúkrunarþyngd íbúa á hjúkrunarheimilum og tryggja góða einstaklingsmiðaða þjónustu. Öll hjúkrunarrými verði einbýli.
Framsókn leggur áherslu á blandaða leið ríkis og einkaaðila í uppbyggingu og rekstri hjúkrunarrýma. Með það að markmiði að flýta uppbyggingu.
Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.