Líf og heilsa

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Líf og heilsa

Heilbrigðismál

Heilbrigðiskerfið er hornsteinn samfélagsins og byggir undir hagsæld þjóðarinnar. Heilbrigðiskerfið byggir á félagslegum grunni þar sem hið opinbera tryggir landsmönnum jafnt aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Framsókn leggur áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um heilbrigðiskerfið og umfram allt tryggja jafnt og tímanlegt aðgengi að öflugri heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag og búsetu.

Framsókn setur lýðheilsusjónarmið í forgrunn allrar stefnumörkunar. Í ljósi þeirra áskorana sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir í tengslum við öldrun þjóðarinnar leggur Framsókn áherslu á að auka vægi endurhæfingar, forvarna, og heilsueflandi aðgerða. Bætt lýðheilsa eru sameiginlegir hagsmunir samfélagsins í heild og mun gegna lykilhlutverki við að tryggja sjálfbærni heilbrigðiskerfisins til framtíðar.

Heilbrigðisþjónusta

Töluverðar umbætur hafa átt sér stað í heilbrigðiskerfinu á þessu kjörtímabili undir stjórn ráðherra Framsóknar. Rauði þráðurinn í því umbótastarfi hefur verið í takt við stefnu Framsóknar um jafnt og tímanlegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þar ber helst að nefna samninga við sérgreinalækna eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi, aukið aðgengi að liðskipaaðgerðum og aðgerðum vegna endómetríósu, þreföldun á styrk til tannréttinga og aukningu í greiðsluþátttöku í ferðakostnaði innanlands eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu er ferðum fjölgaði úr tveimur í þrjár.

Þá hefur rekstrargrunnur helstu þjónustueininga heilbrigðiskerfisins verið styrktur umtalsvert svo sem Landspítala, heilsugæslunnar, heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og Sjúkrahússins á Akureyri. Til viðbótar hefur mönnun í heilbrigðisþjónustu verið að styrkjast og ljóst er að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til eru farnar að skila árangri.

Framsókn vill að heilbrigðisþjónusta á Íslandi verði áfram í fremstu röð og að aðgengi að þjónustunni sé tryggt.

Framsókn leggur áherslu á aukna samvinnu og skilvirkni innan kerfisins við veitingu heilbrigðisþjónustu og að þjónustutengd fjármögnun verði innleidd í auknum mæli. Framsókn leggur áherslu á að skilvirk þjónustukaup og samningar við þjónustuveitendur gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu í blönduðu heilbrigðiskerfi.

Framsókn vill tryggja að skipulag þjónustunnar styðji við samfellu í þjónustu þar sem þjónustuúrræði taki hnökralaust við af hvort öðru, bæði milli þjónustustiga og kerfa.

Framsókn telur að áfram séu tækifæri til að auka aðgengi að ýmis konar sérfræðiþjónustu óháð búsetu með því að innleiða fjarheilbrigðisþjónustu í gegnum fjarskiptabúnað í auknum mæli líkt og lagt er upp með í nýlegum samningi Sjúkratrygginga við sérgreinalækna og rammasamning Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

Forgangsraða þarf fjármunum í átt að forvörnum og heilsueflandi úrræðum fyrir alla aldurshópa.

Framsókn vill halda áfram að stuðla að umbótum í starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks, styðja við nýsköpun og vísindi og stuðla að framþróun þjónustunnar. Framsókn leggur áherslu á að stofna sérstakan heilbrigðisvísindasjóð til styðja enn frekar við vísindi og rannsóknir á heilbrigðisvísindasviði.

Framsókn leggur áherslu á að mikilvægt sé að halda áfram á þeirri vegferð að efla sérnám lækna hér á landi og að fjöldi námsplássa á heilbrigðisvísindasviði endurspegli þörf samfélagsins til framtíðar.

Framsókn telur brýnt að leita allra leiða til að styrkja mönnun á landsbyggðinni og vinna áfram að því að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu.

Til að styðja við mönnun í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni leggur Framsókn áherslu á að halda áfram með vinnu heilbrigðisráðherra í tengslum við að virkja ákvæði í lögum um menntasjóð námsmanna um ívilnanir og endurgreiðslu námslána á skilgreindum svæðum.

Mikilvægt er að efla þjónustu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustað þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og tryggja tímanlegt aðgengi að þjónustunni. Áfram þarf að efla samvinnu milli stofnana og landsvæða til að tryggja viðeigandi mönnun og þjónustu út um allt land.

Framsókn telur brýnt að áfram verði unnið að því að stytta bið eftir lýðheilsutengdum aðgerðum s.s. liðskiptaaðgerðum, augasteinaaðgerðum, aðgerðum við endómetríósu, bakaðgerðum sem og öðrum aðgerðum sem skerða lífsgæði og virkni einstaklinga.

Framsókn telur einnig brýnt að falla frá frávísun skilgreindra hópa við blóðgjöf og taka upp einstaklingsmiðaða áhættugreiningu.

Framsókn fagnar því mikilvæga skrefi heilbrigðisráðherra að birta fyrstu landsáætlun Íslands um sjaldgæfa sjúkdóma. Sjaldgæfir sjúkdómar hafa víðtæk áhrif á aðstandendur og eykst álagið með versnandi sjúkdómi og miklu varðar að bæta lífsgæði einstaklinga sem glíma við sjaldgæfa sjúkdóma.

Framsókn leggur áherslu á mikilvægi þess að koma aðgerðum í aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi til framkvæmda. Fyrirsjáanlegt er að aukið sýklalyfjaónæmi mun valda erfiðleikum við meðhöndlun ýmissa sjúkdóma og sýkinga, auka dánartíðni og auka kostnað í heilbrigðiskerfinu.

Geðheilbrigðisþjónusta

Framsókn leggur áhersla á að þær aðgerðir sem fram koma í nýlega samþykktri aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum verði fjármagnaðar og komið til framkvæmda. Í takt við stefnu Framsóknar þá er lagt til í áætluninni að geðrækt, forvarnir og snemmtæk úrræði verði grundvöllur geðheilbrigðis einstaklinga. Þá er einnig lögð áhersla á notendamiðaða þjónustu á öllum stigum geðheilbrigðisþjónustunnar.

Framsókn telur skynsamlegt að halda áfram að efla 1.stigs geðheilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar til að styðja við snemmtæk inngrip og fyrirbyggja frekari veikindi. Á kjörtímabilinu hafa svæðisbundin geðheilsuteymi verið fest í sessi með viðbótar fjárveitingu og þá hefur stöðugildum sálfræðinga innan heilsugæslunnar einnig verið fjölgað. Framsókn telur brýnt að halda áfram að byggja upp og styrkja geðheilsuteymi á landsvísu svo þau verði aðgengileg þeim sem þurfa á þeirri þjónustu að halda.

Framsókn leggur áherslu á að húsnæði geðdeildar Landspítala verði forgangsraðað framarlega í áfanga tvö í heildaruppbyggingu Landspítala og deildinni verði fundinn staður sem býður upp á batamiðað umhverfi.

Framsókn fagnar þeim mikla árangri sem hefur náðst við að stytta bið eftir geðheilbrigðisþjónustu barna og leggur áherslu á að halda áfram að leita allra leiða til að stytta alla biðlista eftir geðheilbrigðisþjónustu.

Dánaraðstoð

Framsókn vill stuðla að opinni umræðu um dánaraðstoð og að samþykkt verði löggjöf um að við vel skilgreindar aðstæður og að uppfylltum ströngum skilyrðum verði dánaraðstoð raunverulegur og mannúðlegur valkostur.

Lýðheilsa og forvarnir

Framsókn styður þær áherslur sem fram koma í aðgerðaráætlun í lýðheilsu sem samþykkt var á kjörtímabilinu.

Framsókn vill að lýðheilsumat verði innleitt í íslenska löggjöf til að tryggja að mat fari fram áður en teknar eru ákvarðanir sem geta haft áhrif á lýðheilsu þjóðarinnar, í takt við aðgerðaráætlun í lýðheilsu til ársins 2027 um að lýðheilsumat verði hluti af sjálfbærnimati á frumvörpum Alþingis.

Framsókn vill fara í þjóðarátak í lýðheilsutengdum forvörnum til að efla einstaklinga til virkni og bættrar heilsu í íslensku samfélagi. Það er þýðingarmikil fjárfesting í fólki.

Framsókn vill stórefla lýðheilsu og forvarnir í heilbrigðiskerfinu og nýta til þess krafta í Íþróttasambandi Íslands, íþrótta- og ungmennafélögum um allt land, félagasamtökum, heilbrigðisfyrirtækjum og líkamsræktarstöðvum.

Framsókn vill auka fjárveitingar til lýðheilsusjóðs enn frekar til að styðja við mikilvæg verkefni á fjölbreyttu sviði lýðheilsu og forvarna.

Framsókn fagnar nýrri krabbameinsáætlun fyrir Ísland sem er nú í mótun. Framsókn telur brýnt að taka upp skipulagðar skimanir eftir krabbameini í ristli og endaþarmi hér á landi.

Framsókn vill efla fjölbreyttar forvarnir á breiðu sviði og efla vitund um mikilvægi hreyfingar, svefns og mataræðis, sem og áhrif streitu á andlega líðan.

Áfengis- og vímuvarnir

Framsókn styður þá vinnu sem heilbrigðisráðherra hefur sett af stað í tengslum við heildstæða stefnumótun á sviði áfengis og vímuvarna sem tekur til forvarna, meðferðarúrræða, eftirfylgni meðferða, endurhæfingar og lagaumhverfis.

Framsókn leggur áherslu á skaðaminnkandi nálgun í áfengis- og fíkniefnamálum. Skaðaminnkandi hugmyndafræði á að vera hluti af úrræðum innan heilbrigðiskerfisins í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Skaðaminnkun miðar að því að draga úr skaðlegum afleiðingum hegðunar eða lífsstíls, óháð því hvort hún sé æskileg, lögleg eða ólögleg. Framsókn fagnar þeirri tímamóta vinnu sem heilbrigðisráðherra setti af stað með fyrstu skaðaminnkunarstefnu Íslands.

Framsókn telur mikilvægt að vinna að því markmiði að draga úr neyslu áfengis, tóbaks og nikótínvara í takti við áætlanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem fulltrúar Íslands hafa samþykkt. Framsókn telur skynsamlegt að nikótínvörur falli undir tóbakslöggjöf stjórnvalda.

Framsókn vill viðhalda einkasölu ríkisins á áfengi og leggst gegn lögfestingu heimildar til reksturs innlendra vefverslana með áfengi í smásölu til neytenda í samkeppni við ríkið í ljósi mikilvægra lýðheilsusjónarmiða.

Framsókn telur brýnt að standa vörð um hagsmuni barna með öflugum forvörnum um áfengis- og vímuvarnir. Framsókn telur mikilvægt að vakta vel lýðheilsuvísa embættis Landlæknis og bregðast við óæskilegri þróun þeirra með markvissum og gagnreyndum forvörnum.