Hveragerði: Fjölskylduhátíð Framsóknar
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Rósakaffi
Sveitarfélag
Hveragerði
Setja í dagatal

Komdu og njóttu skemmtilegrar fjölskyldustundar í góðri stemningu!
Söng- og leikhópurinn Tónafljóð stígur á svið kl. 13:30 með skemmtilega Disney barnasýningu þar sem sjá má bæði skemmtileg leikatriði og litríka búninga. Þetta eru lög sem bæði börn og fullorðnir geta sungið með og notið
Kl. 14:00 verður Sirkus Ananas með vinnustofu í Smágörðunum þar sem gestir geta prófað allskonar sirkusáhöld, æft sig og skemmt sér saman. Vinnustofan hentar bæði börnum og fullorðnum - hvort sem fólk hefur reynslu eða langar einfaldlega að leika sér og læra eitthvað nýtt.
Á staðnum verður meðal annars hægt að prófa húllahringi, djögglbolta, poi, blómaprik, snúningadiska og jafnvægisfjaðrir.
Það verður líka poppvél og candyfloss á staðnum og Kjörís býður upp á ís!


