Hveragerði: Kosningakaffi og kosningavaka
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Rósakaffi
Sveitarfélag
Hveragerði
Setja í dagatal

Það verður sannkölluð hátíðarstemning hjá okkur á kosningaskrifstofunni á laugardaginn!
Við opnum klukkan 10:00 og bjóðum upp á kaffi og bakkelsi. Í hádeginu verður boðið upp á súpu og brauð og um miðjan dag tekur hið margrómaða kaffihlaðborð Rósakaffis við.
Um kvöldið tekur svo við skemmtileg kosningavaka. Við verðum með sjónvarpsútsendingu í beinu streymi með tölum kvöldsins, góða stemningu og léttar vínveitingar. Góð tilboð á barnum fram eftir kvöldi.
Það er tilvalið að setja X við B, kíkja í kaffi og kökur og skemmta sér svo með okkur fram á nótt.
Verið öll hjartanlega velkomin og við hlökkum til að sjá sem flesta yfir daginn og fram á kvöld.


