26. Kjördæmisþing KFNA

Dagsetning

21. mars 2026
21. mars 2026

Tími

11:00

Staðsetning

Lionsalurinn, Skipagata 14.

Sveitarfélag

Akureyri

26. Kjördæmisþing KFNA verður haldið laugardaginn 21. mars n.k. í Lionssalnum, Skipagötu 14 Akureyri kl. 11:00.

26. Kjördæmisþing KFNA verður haldið laugardaginn 21. mars n.k. í Lionssalnum, Skipagötu 14 Akureyri kl. 11:00.

Stjórn KFNA hefur ákveðið að aðaláhersla þingsins verði sveitarstjórnarmál og hvetur því sveitarstjórnarfólk sérstaklega til þátttöku á þinginu en þingið er opið öllu Framsóknarfólki í kjördæminu.


Dagskrá þingsins er sem hér segir:

11:00 Setning og kosning starfsmanna þingsins

11:10 Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram

11:30 Ávörp

12:30 Hádegishlé

13:00 Kosningar:

– Þrír fulltrúar í stjórn KFNA til tveggja ára og fimm varafulltrúar til eins árs.

– Formaður kjörstjórnar

– Sex fulltrúar í kjörstjórn

– Fulltrúar KFNA í miðstjórn Framsóknarflokksins samkvæmt lögum flokksins

– Tveir skoðunarmenn reikninga

13:30 Sveitarstjórnarkosningar- kynningar

14:00 Sveitarstjórnarmál umræður

16:30 Önnur mál

17:00 Þingslit


Stjórn KFNA hefur ákveðið að ekki verði innheimt þinggjöld og veitingar á fundinum verði í boði kjördæmissambandsins.


Formenn félaga munu halda utan um skráningar á þingið og skil á kjörbréfum í samræmi við lög KFNA.

Vakin er athygli á að starfsnefnd hefur verið skipuð til að taka á móti tillögum um frambjóðendur sem kosið verður um til trúnaðarstarfa.

Nefndina skipa:

Gunnfríður Hreiðarsdóttir, Akureyri formaður s: 898-4897

Eiður Pétursson, Norðurþingi s: 864-8447

Eygló Björg Jóhannsdóttir, Múlaþingi s: 851-1535.


Hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórn KFNA