26. kjördæmisþing KFNV

Dagsetning

21. mars 2026
21. mars 2026

Tími

13:00

Staðsetning

Laugar í Sælingsdal

Sveitarfélag

Boðað er til 26. Kjördæmisþings Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi (KFNV) dagana 21-22 mars að Laugum í sælingsdal . Þingsetning er kl. 13.00 laugardaginn 21. mars.

Þinggjaldið er kr. 3.500kr,-

Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að því að manna kjörbréf fyrir þingið og gott væri að áhugasamir félagsmenn myndu tilkynna sig til þeirra.

Starfsnefnd hefur verið skipuð fyrir kjördæmisþing KFNV og er hlutverk nefndarinnar að taka á móti tillögum um frambjóðendur til trúnaðarstarfa á vegum KFNV sem kosið verður um á þinginu. Starfsnefndina skipa: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Hlíf Hrólfsdóttir og Garðar Freyr Vilhjálmsson  er formaður nefndarinnar og skulu framboð berast til hans á netfangið gardarfreyr@gmail.com

Þau embætti sem kosið verður um á þinginu skv. lögum KFNV eru:
• formaður KFNV
• sex fulltrúa í stjórn KFNV og sex til vara
• formann kjörstjórnar
• sex fulltrúa í kjörstjórn
• fulltrúa KFNV í miðstjórn, aðal- og varamenn, skv. lögum flokksins
• tvo skoðunarmenn reikninga

***

Drög að dagskrá:

Laugardagur 21. mars
1. Setning og kosning starfsmanna þingsins
2. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram
3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
4. Ávörp gesta
5. Almennar stjórnmálaumræður
Kaffihlé
6. Kosningar:
a. formaður KFNV
b. sex fulltrúa í stjórn KFNV og sex til vara
c. formann kjörstjórnar
d. sex fulltrúa í kjörstjórn
e. fulltrúa KFNV í miðstjórn, aðal- og varamenn, skv. lögum flokksins
f. tvo skoðunarmenn reikninga
g. þrjá fulltrúa í launþegaráð og þrjá til vara

7. Lagabreytingar
Þinghlé
Hátíðarkvöldverður og almenn gleði!

Sunnudagur 22. mars
8. Nefndarstörf
9. Afgreiðsla ályktana
10. Önnur mál
11. Þingslit

***


Frekari upplýsingar um gistingu og veitingar verða sendar út síðar