Kjördæmisþing KFSV
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Bæjarlind 14-16
Sveitarfélag

Þing Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi (KFSV) í Bæjarlind 14, Kópavogi, fimmtudaginn 9. apríl kl. 19:00
Dagskrá:
18:40 Skráning.
19:00 Setning og kosning starfsmanna þingsins.
19:05 Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram.
– Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
– Reikningar bornir upp til samþykktar.
19:30 Ávarp Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins
Ávörp fulltrúa sérsambanda
20:00 Almennar stjórnmálaumræður.
21:00 Kosning í trúnaðarstöður:
a) Formaður stjórnar KFSV.
b) Sex aðrir í stjórn KFSV.
c) Tveir til vara í stjórn KFSV.
d) Formaður kjörstjórnar vegna næstu alþingiskosninga.
e) Sex fulltrúar í kjörstjórn vegna næstu alþingiskosninga.
f) Fulltrúar KFSV í miðstjórn Framsóknarflokksins.
Kjósa skal einn fulltrúa fyrir hverja 100 félagsmenn í kjördæminu eða brot úr þeirri tölu umfram 50. Kjör þeirra gildir á milli reglulegra kjördæmisþinga. Þriðjungur þeirra hið minnsta skal vera úr hópi ungs framsóknarfólks. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir á sama hátt.
g) Tveir skoðunarmenn reikninga KFSV.
h) Þrír fulltrúar og þrír til vara í Launþegaráð Framsóknarflokksins, úr hópi launþega.
22:00 Þingslit.
Þinggjald kr. 1.500 greiðist við skráningu. Innifalið er kaffiveitingar
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Stjórn KFSV

