Miðstjórnarfundur
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Laugarbakki, Húnaþingi vestra
Sveitarfélag
Húnaþing vestra
Setja í dagatal

Landsstjórn Framsóknar boðar til miðstjórnarfundar Framsóknar 7.-8. nóvember 2026 á Laugarbakka í Miðfirði í Húnaþingi vestra.
Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur.
_____________________________________________________
Úr lögum Framsóknar um miðstjórn:
10.1. Miðstjórn fer með umboð flokksins á milli flokksþinga og útfærir meginstefnu hans í landsmálum. Miðstjórn ákvarðar um þátttöku flokksins í ríkisstjórn. Málefnasamning um ríkisstjórnarsamstarf skal leggja fyrir miðstjórn.
10.2. Í miðstjórn eiga sæti:
Einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn í hverju kjördæmi eða brot úr þeirri tölu umfram 50. Þessir fulltrúar skulu kosnir á kjördæmisþingum til eins árs í senn eftir reglum sem hlutaðeigandi kjördæmissamband setur. Þriðjungur fulltrúanna hið minnsta skal vera úr hópi ungs framsóknarfólks. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir á sama hátt.
Alþingismenn flokksins og ráðherrar.
Landsstjórn og framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins.
Fyrrverandi þingmenn og ráðherrar Framsóknarflokksins enda séu þeir félagsmenn.
Aðalmenn í sveitarstjórn, sveitarstjórar eða bæjarstjórar enda séu þeir félagsmenn.
Stjórn og varastjórn launþegaráðs Framsóknarflokksins, sbr. gr. 8.4.
Sjö fulltrúar kosnir af landsstjórn.
10.3. Miðstjórn skal boðuð til fundar tvisvar á ári, vor og haust með 30 daga fyrirvara. Vorfundir skulu haldnir í framhaldi af kjördæmaþingum. Þó er heimilt að boða til auka fundar miðstjórnar með skemmri fyrirvara. Á vorfundi skal taka félagsstarf flokksins á komandi starfsári sérstaklega til umræðu. Aðrir fundir miðstjórnar skulu haldnir þegar landsstjórn flokksins ákveður og eru þeir löglegir ef þar mætir meirihluti miðstjórnarmanna. Einnig er skylt að boða til miðstjórnarfundar ef þriðjungur miðstjórnarmanna krefst þess skriflega. Það ár sem flokksþing er haldið hefur framkvæmdastjórn heimild til að fella niður vorfund miðstjórnar og færa umræðu um félagsstarf flokksins fram til haustfundar.
10.4. Á vorfundi miðstjórnar skulu miðstjórnarmenn kjósa úr sínum hópi til eins árs í senn:
a) Fjóra fulltrúa í fræðslu- og kynningarnefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara.
b) Fjóra fulltrúa í málefnanefnd Framsóknarflokksins og tvo til vara.
10.5. Innan miðstjórnar starfar fræðslu- og kynningarnefnd. Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. a-lið gr. 10.4. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með framkvæmd kynningar- og fræðslumála Framsóknarflokksins og skal hún sérstaklega leggja áherslu á upplýsingamiðlun innan flokksins. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á haustfundi miðstjórnar ár hvert.
10.6. Innan miðstjórnar starfar málefnanefnd. Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur skv. b-lið gr. 10.5. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu Framsóknarflokksins. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á haustfundi miðstjórnar ár hvert.

