SEF: Aðalfundur
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Bæjarlind 14-16 og Teams
Setja í dagatal

Boðað er til aðalfundar Sambands eldri Framsóknarmanna (SEF) mánudaginn, 2. nóvember. Fundurinn verður haldinn á TEAMS og í Framsóknarsalnum Bæjarlind 14 í Kópavogi og hefst hann kl. 19:30.
Þeir félagar sem vilja taka þátt í í fundinum sendi ósk um það á netfangið: framsokn@framsokn.is.
Á fundardegi fá þeir sem hafa óskað eftir því að sitja aðalfundinn hlekk til að tengjast inn á fundinn. Félagar hvattir til að taka þátt í okkar starfi og mæta á aðalfundinn. Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við framsokn@framsokn.is eða hringja á skrifstofu Framsóknar í síma: 540-4300.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundur settur – Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður
2. Tilnefning starfsmanna fundarins, fundarstjóri og ritari
3. Ársskýrsla stjórnar – Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður
4. Reikningar síðasta árs lagðir fram
5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
6. Afgreiðsla reikninga
7. Lagabreytingar (ef einhverjar eru)
8. Kosningar:
- Formaður
- Fjórir (4) meðstjórnendur
- Þrír (3) varastjórnarmenn
- Trúnaðarmannaráð (tilnefningar staðfestar)
- Sex (6) aðalmenn
- Sex( 6) varamenn
- Tveir (2) skoðunarmenn reikninga
9. Lilja D: Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, flytur ávarp
10. Drífa Sigfúsdóttir ræðir um hættur sem fylgja notkun svefnlyfja
11. Björn Snæbjörnsson, formaður LEB ræðir um starf Landsambands eldri borgara
12. Umræða og afgreiðsla ályktana sem lagðar hafa verið fram
13. Önnur mál
Fundarslit.


