Strandabyggð: Opin umræða
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Kvenfélagshúsið, Kópnesbraut 7
Sveitarfélag
Strandabyggð
Setja í dagatal

Hvað liggur ykkur á hjarta?
Framsókn og óháðir bjóða ykkur hjartanlega velkomin í opið spjall.
Við höfum átt gott og innihaldsríkt samtal við eldri borgara og erum þakklát fyrir þær móttökur sem við fengum. Nú langar okkur að halda áfram og heyra í sem flestum íbúum.
Framundan eru fjórir opnir fundir þar sem öllum íbúum Strandabyggðar er velkomið að mæta, spjalla og deila sínum hugmyndum.
Á hverjum fundi verður lögð áhersla á ólík málefni sem snerta okkar daglega líf.
Við viljum heyra frá ykkur. Hvað skiptir ykkur máli?
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga góðar umræður.


