Vorhátíð Framsóknar í Múlaþingi

Dagsetning

25. apríl 2026
25. apríl 2026

Tími

Staðsetning

Austrasalurinn

Sveitarfélag

Múlaþing

Setja í dagatal

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á vorhátíð Framsóknar á Egilsstöðum þar sem við ætlum að eiga notalega stund saman og eiga samtal við kjósendur um það sem skiptir máli í okkar samfélagi.

Boðið verður upp á grillaðar pylsur, hoppukastala fyrir börnin, popp og candyfloss, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Markmiðið er að skapa hlýlegt og opið umhverfi þar sem auðvelt er að setjast niður, spjalla og ræða hvað betur má fara.

Við viljum heyra frá ykkur!

Hvað finnst ykkur skipta mestu máli?

Hvað má betur fara?

Hvaða áherslur viljið þið sjá á komandi kjörtímabili?

Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga góða stund saman💚