16. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna

Boðað er til 16. Landsþings Landssambands framsóknarkvenna (LFK) laugardaginn 7. september í Framsóknarhúsinu Hverfisgötu 33, 3. hæð í Reykjavík. Skráning fer fram á skrifstofu Framsóknar í síma 540-4300 eða á netfangið framsokn@framsokn.is. Skráning fer fram til 31. ágúst. Mikilvægt er að konur skrái sig tímanlega vegna undirbúnings þingsins.

Þinggjöld eru 1.500 kr. Innifalið í þinggjöldum eru þinggögn, súpa og brauð í hádeginu, kaffi og með því.

Framsóknarkonur vítt og breytt um landið eru því beðnar um að taka þessa daga frá og að taka þátt í öflugu landsþingi LFK og stemmingu sem enginn verður svikin af!

Uppstillingarnefnd hefur hafið störf. Vinsamlega látið vita af framboði ykkar til hennar:

 

Drög að dagskrá:

Laugardagur 7. september 2013

09.00  Þingsetning

09.05  Kosning starfsmanna þingsins:

–  Kosning þingforseta

–  Kosning þingritara

–  Kosning starfsnefndar (3)


09.10   Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram / umræður

09.40  Ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra Eyglóar Harðardóttur

10.00  Kaffihlé

11.15 Málefnahópar kynntir – taka til starfa:

Hópur 1 - Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál

Hópur 2 - Efnahagsmál

Hópur 3 - Atvinna, samgöngur og umhverfi

Hópur 4 - Menntun, menning og íþróttir

Hópur 5 - Velferð

Hópur 6 - Lagabreytingar og aðrar tillögur

12.00  Hádegishlé

14.30  Niðurstöður hópvinnu og tillögur lagðar fyrir þingið – umræður

15.20  Lagabreytingar

15.30  Kosningar:

– Formaður

– Framkvæmdastjórn (4) og varastjórn (2)

– Landsstjórn (6) og varastjórn (6)

– Skoðunarmenn reikninga (2)

– Varaskoðunarmenn reikninga (2)


15.45 Önnur mál

16.00 Þingslit

Framkvæmdastjórn LFK áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá þingsins.

 

FRAMKVÆMDASTJÓRN LFK