B – hliðin
Formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir alþingismaður í Reykjavík sýnir B - hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Vigdís Hauksdóttir. Gælunafn: Vigga. Aldur: 49. Hjúskaparstaða? Einhleyp. Börn? Hlynur 21 árs og Sólveig 16 ára. Hvernig síma áttu? Iphone 3S. Uppáhaldssjónvarpsefni? Fræðsluþættir. Uppáhalds vefsíður: Fréttasíður. Besta bíómyndin? Titanic. Hvernig tónlist hlustar þú á? Það sem er í útvarpinu hverju sinni. Uppáhaldsdrykkur: G&T = gin og tonic. Hvað finnst þér best að borða? Nautakjöt og humar. Hvaða lag kemur þér í gírinn? I will survive. Ertu hjátrúarfull? Já. Hverslags viðfangsefni myndirðu ekki leggja nafn þitt við? Að ganga í Evrópusambandið. Hver var fyrirmyndin þín á yngri árum? Faðir minn. Hver er fyrirmyndin þín í dag? Faðir minn. Hverjir eru sessunautar þínir á Alþingi? Silja Dögg og Óttar Proppé. Hver eru helstu áhugamálin? Garðrækt og pólitík. Besti vinurinn í vinnunni? Á marga. Helsta afrekið hingað til? Að hafa hlotið kjör í tvígang sem alþingismaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, Íslandsmeistaratitill í blómaskreytingum og sigur í fjöltefli við Íslands – og Færeyjameistara í skák. Uppáhalds manneskjan? Börnin mín tvö. Besti skyndibitinn? Subway. Það sem þú borðar alls ekki? Hvalkjöt. Lífsmottóið? Horfa aldrei um öxl því fortíðinni breytum við ekki, lifa í nútíðinni og hafa uppbyggileg áhrif á framtíðina – gera betur í dag en í gær. Þetta að lokum: Taka ákvörðun um að vera sólarmegin í lífinu og sjá spaugilegu hliðarnar á öllum málum. Þegar ein hurð lokast þá opnast tuttugu gluggar.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



