Bætt kjör námsmanna á oddinn

Á 39. Sambandsþingi Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) sem haldið er um helgina á Hótel Selfossi var Helgi Haukur Hauksson kjörinn nýr formaður sambandsins. Helgi tekur við af Hafþóri Eide Hafþórssyni sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Helgi Haukur er 29 ára gamall nemi við Háskólann á Bifröst. Jafnframt var kjörin ný 12 manna stjórn SUF, hana skipa:

Alex Björn Bülow

Kjartan Þór Ingason

Davíð Freyr Jónsson

Ásta Hlín Magnúsdóttir

Kristjana Louise

Páll Maris Pálsson

Ágúst Bjarni Garðarsson

Sóley Þrastardóttir

Fjóla Hrund Björnsdóttir

Einar Freyr Elínarson

Jónína Berta Stefánsdóttir

Heiðrún Sandra Grettisdóttir

Varastjórn skipa:

Sandra Rán Ásgrímsdóttir

Sigurjón Nordberg Kjærnested

Marteinn Eyjólfur Sigurbjörnsson

Steinunn Anna Baldvinsdóttir

Gissur Kolbeinsson

Diljá Helgadóttir

Ísak Traustason

Elka Hrólfsdóttir

Magnús Arnar Sigurðsson

Tanja Kristmannsdóttir

Hafþór Eide Hafþórsson

Hulda Margrét Birkisdóttir

Ungir Framsóknarmenn vilja bæta kjör námsmanna

Á þinginu voru lagðar línur og áherslur fyrir komandi starfsár. Mikil umræða var um kjör námsmanna á þinginu og stóð vilji fundarmanna til að forysta sambandsins myndi leggja mikla áherslu á að bæta kjör námsmanna hið fyrsta. Umræða um hækkun frítekjumarks námslána var hávær og ljóst að ungir framsóknarmenn telja að það geti verið ein skilvirkasta leiðin til að bæta kjör námsmanna.

Hér eru ályktanir frá þinginu.