Menntun barna er ein mikilvægasta fjárfesting sem samfélag getur ráðist í. Þar mótast tækifæri barna, sjálfstraust þeirra og hæfni til að taka þátt í samfélaginu. Viljum við byggja á upp sterkt, réttlátt og framsækið samfélag verður að tryggja skólunum skýra stefnu, öflugan stuðning og raunverulegt svigrúm til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda.

Í grunn stefnu Framsóknar er lögð áhersla á að styrkja grunnskólakerfið með markvissum hætti. Þar skiptir miklu máli að tryggja jöfn tækifæri fyrir öll börn, efla stoðþjónustu og þróa fjölbreyttar leiðir í námi sem tengjast bæði samfélaginu og framtíðinni.

Þessar áherslur ríma vel við það sem kom fram hjá foreldrum og starfsfólki á fundum sem Ísafjarðarbær hélt í öllum sínum bæjarkjörnum sínum í mars síðastliðnum til að móta nýja menntastefnu. Undirrituð sat meirihluta fundanna og var ánægjulegt að sjá þann metnað sem íbúar og starfsfólk sýna skólunum, sem og þann skýra vilja sem er til staðar til að efla skólastarfið. Umræðurnar voru uppbyggilegar og hugmyndirnar fjölbreyttar.

Á fundunum komu fram mörg sterk dæmi um framsækið starf í skólum sveitarfélagsins.

Á Suðureyri er stór hluti nemenda af erlendum uppruna og þar skiptir inngilding sköpum. Allir nemendur þurfa að fá raunverulegt tækifæri til að taka þátt í námi og félagslífi á eigin forsendum. Það er bæði samfélagslegt verkefni og lykill að því að byggja upp sterkt samfélag.

Á Flateyri hefur verið byggt upp öflugt útinám sem tengir nám við náttúru og nærumhverfi. Slík nálgun eykur áhuga nemenda, styrkir færni þeirra og gerir námið lifandi.

Á Þingeyri var mikið rætt um svokallaðar skólalotur, sem gefa nemendum tækifæri til að kafa dýpra í verkefni og viðfangsefni sem tengjast bæði námi og samfélagi. Slík nýsköpun í kennslu getur aukið bæði áhuga og þátttöku nemenda. Hún skapar jafnframt tækifæri til að ráða inn kennara í stuttan tíma með sérþekkingu á ákveðnum sviðum.

Á Ísafirði kom skýrt fram mikilvægi þess að kennarar og starfsfólk njóti sterks faglegs stuðnings. Þar liggur lykillinn að góðu skólastarfi. Viljum við öfluga skóla verðum við að tryggja kennurum betri aðgang að stoðþjónustu, ráðgjöf og símenntun.

Kennarar eru hjarta skólastarfsins. Þegar við styrkjum kennara styrkjum við skólana. Nú hefur verið ráðinn kennsluráðgjafi til starfa hjá Ísafjarðarbæ og er hlutverk hans meðal annars að styðja kennara í daglegum störfum þeirra.

Ein helsta áskorun skólastarfsins í dag er að skapa umhverfi þar sem börn geta einbeitt sér að námi, átt heilbrigð samskipti og notið skóladagsins án óþarfa truflana. Á undanförnum árum hafa snjallsímar orðið sífellt stærri hluti af daglegu lífi barna og ungmenna. Rannsóknir sýna að ofnotkun þeirra getur haft áhrif á einbeitingu, félagsfærni og líðan nemenda.

Þess vegna vilja Framsókn og óháðir leggja ríka áherslu á síma frí í grunnskólum. Með símafríi er ekki verið að hafna tækninni heldur að skapa nauðsynlegt jafnvægi. Þegar börn fái frí frá snjallsímum á skólatíma gefst þeim tækifæri til að beina athyglinni að kennslu, verkefnum og samskiptum við samnemendur. Skólinn verður vettvangur þar sem námið fær forgang og félagsleg tengsl styrkjast.

Skólarnir í Ísafjarðarbæ sýna að með fjölbreytni, nýsköpun og sterkri tengingu við samfélagið er hægt að byggja upp öflugt menntakerfi fyrir öll börn. Með skýrri stefnu, auknum stuðningi og sameiginlegum vilja getum við tryggt að skólarnir okkar verði áfram traustur grunnur fyrir framtíð barna okkar.

Framtíð Ísafjarðarbæjar ræðst af því hvernig við stöndum vörð um skólana okkar í dag. Framsókn vill halda áfram að vinna með íbúum, kennurum og öllu skólasamfélaginu að því að byggja upp enn sterkari skóla – fyrir börnin okkar og framtíð samfélagsins.

Elísabet Samúelsdóttir bæjarfulltrúi og nefndarmaður í skóla- íþrótta- og tómstundanefnd.

Skipar 2. sæti á lista Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ

Greinin birtist fyrst á bb.is 25. apríl 2026