Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær

Kjörnir fulltrúar og frambjóðendur
Kristján Þór Kristjánsson

1. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ. Sveitarstjórnarfulltrúi í Ísafjarðarbæ Kristján Þór Kristjánsson er 49 ára Hnífsdælingur og giftur henni Salome Elínu Ingólfsdóttur næringafræðingi og kennara. Saman eiga þau fjögur börn og búa á Ísafirði. Kristján starfar sem hótelstjóri og bæjarfulltrúi og er menntaður rekstrarfræðingur. Í gegnum störf sín hefur hann öðlast víðtæka reynslu af rekstri, fjármálum og mannlegum samskiptum – reynslu sem eru lykilatriði í ábyrgri og árangursríkri stjórnun sveitarfélags. Þegar Kristján er ekki að sinna vinnu og njóta með fjölskyldunni þá eru helstu áhugamál hans fjallgöngur, veiðar, íþróttir og sveitarstjórnarmál. Hann brennur landsbyggðinni og telur að framtíð hennar byggist á sterkum, sjálfbærum og framsæknum sveitarfélögum. Okkar sveitarfélag á að vera staður þar sem fólk vill búa, ala upp börn og byggja framtíð sína. Til þess þarf skýra stefnu og ábyrg vinnubrögð. Hann vil sjá rekstur bæjarins vera traustan og agaðan, þar sem við náum að lækka skuldir á sama tíma og við fjárfestum í nauðsynlegum innviðum – skólum, þjónustu og aðstöðu fyrir íbúa og atvinnulíf. Þetta er ekki annað hvort eða – þetta er spurning um forgangsröðun og góða stjórnun. Hann trúir á kraft samvinnunnar. Með reynslu úr liðsíþróttum veit hann að besti árangurinn næst þegar allir róa í sömu átt. Bæjarstjórn, starfsmenn sveitarfélagsins og íbúar þurfa að vinna saman sem ein heild – með skýr markmið og gagnkvæmt traust. Starfsmenn sveitarfélagsins eru ein af okkar mikilvægustu auðlindum. Án þeirra er ekki hægt að veita þá þjónustu sem íbúar eiga rétt á.

Elísabet Samúelsdóttir

2. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ. Sveitarstjórnarfulltrúi í Ísafjarðarbæ. Elísabet Samúelsdóttir er 46 ára ísfirðingur og er þar fædd og uppalin. Hún er gift Atla Frey Rúnarssyni og saman eiga þau fjórar dætur. Bubba er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í forystu og stjórnun. Hún starfar sem framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða en er einnig bæjarfulltrúi, formaður menningarmálanefndar og situr í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd. Helstu áhugamál hennar er útivist og hreyfing og ver hún miklum tíma að ferðast og fylgja börnum sínum eftir í þeirra áhugamálum. Hún brennur fyrir því að samfélagið okkar haldi áfram að vaxa og dafna, því hér er svo gott að búa og vill að börnin okkar sjái það sem raunverulegan valkost að koma aftur heim eftir nám og byggja hér sitt líf. Til þess þurfum við að hlúa vel að grunnstoðunum okkar: að atvinnulífið sé lifandi og fjölbreytt, samgöngur tryggðar, skólarnir okkar séu sterkir og vel mannaði og að bæði íþrótta- og menningarlíf fái að blómstra. Það þarf líka að tryggja að fólk hafi raunverulegt val um húsnæði — á öllum lífsskeiðum og að eldra fólkið okkar geti búið við öryggi og reisn, í húsnæði sem hentar þeirra þörfum. Fyrir hana skiptir líka miklu máli að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna okkar. Hún er grunnstoð í góðu samfélagi — og við megum ekki taka hana sem sjálfsagðan hlut.

Hannibal Hafberg

3. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ. Hannibal Hafberg er 35 ára flateyringur sem býr þar og er í sambúð með Guðnýju Ósk Árdal en saman eiga þau dótturina Sóleyju Lukku. Hannibal er sjávarútvegsfræðingur að mennt og starfar hjá fiskeldisfyrirtækinu Háafell ehf. Helstu áhugamál Hannibals eru bókmenntir, pólitík og fótbolti. Hannibal brennur fyrir jákvæðu og skemmtilegu umhverfi þar sem fólki líður vel og vill leggja sitt af mörkum. Hann trúir því að bestu lausnirnar verði til þegar við þorum að ræða málefni af hreinskilni, án þess að festast í skotgröfum eða taka því persónulega að fólk hafi ólíkar skoðanir á málefnum. Hannibal er sannfærður um að þegar við leggjum áherslu á að það sé gott, gefandi og gaman að vinna og búa í Ísafjarðarbæ, þá hafi það bein áhrif á metnað, samheldni og gæði í því sem við gerum. Honum langar að leggja sitt af mörkum til að skapa umræðu sem einkennist af gleði, virðingu og lausnamiðaðri hugsun.

Tinna Rún Snorradóttir

4. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ. Tinna Rún Snorradóttir er 31 árs súðvíkingur sem býr nú á Ísafirði ásamt sambýlismanni sínum honum Óla Rafni Kristinssyni. Saman eiga þau tæplega tveggja ára dreng hann Adam Mána. Tinna Rún er með BSc gráðu í Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc gráðu í Iðnaðarverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn, og starfar í dag sem rannsóknar- og þróunarstjóri hjá Bláma. Hennar helstu áhugamál er að ferðast, stunda crossfit og lyftingar, síðan fékk hún einnig golf-bakteríuna í fyrrasumar og er hún einnig hluti af björgunarsveitinni og slökkviliðinu í Súðavík. Tinna Rún brennur fyrir því að efla atvinnulíf, nýsköpun og verðmætasköpun í Ísafjarðarbæ. Með skýru skipulagi, sterkum innviðum og góðu samstarfi við atvinnulífið getum við tryggt að sveitarfélagið sé samkeppnishæft og spennandi staður til að búa og starfa. Á sama tíma er mikilvægt að sveitarfélagið sé góður staður fyrir fjölskyldur. Þar sem hún á sjálf barn á leikskóla og því standa leikskóla- og skólamál henni nærri. Sterkt atvinnulíf og góð menntun barna fara hönd í hönd, þannig byggjum við upp samfélag þar sem bæði fólk og fyrirtæki vilja búa og starfa til framtíðar.

Elísabet Margrét Jónasdóttir

5. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ. Elísabet Margrét Jónasdóttir er 47 ára súðvíkingur sem býr á Bæ í Staðardal rétt fyrir utan Suðureyri. Hún er gift honum Kristjáni Bjarna Karlssyni og við eigum fjögur börn og tvö barnabörn. Elísabet er fjármálastjóri hjá Fiskvinnslunni Íslandssögu á Suðureyri, og er einnig einn eigenda Verkhafs ehf sem hún og Kristján maðurinn hennar stofnuðu árið 2017. Þau reka svo búskap á Bæ í Staðardal með u.þ.b. 450 kindur. Ofan á þetta allt saman stundar hún nú nám við Executive MBA. Elísabet hefur ýmis áhugamál og eru þau fjölbreytt eins og regnboginn og fær hún yfirleitt þrjár nýjar hugmyndir um leið og hún fer fram úr á morgnanna svo er annað sem situr efst eins og fjallgöngur, ferðalög og það allra mikilvægasta í lífinu er fjölskyldan. Hún brennur fyrir stórbættum samgöngum, öflugri og fjölbreyttri landsbyggð þar sem fyrirtæki, nýsköpun og samheldni skapa tækifæri fyrir komandi kynslóðir og síðast en ekki síst jöfnum tækifærum barna til þátttöku í íþróttum, tónlist eða tómstundum óháð búsetu eða aðstæðum því börnin okkar eru börnin okkar allra.

Guðni Páll Viktorsson

6. sæti á lista Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ Guðni Páll Viktorsson er 38 ára þingeyringur sem er í dag búsettur á Ísafirði. Hann býr þar ásamt konu sinni henni Evu Alfreðsdóttur og saman eiga þau tvær dætur. Hann er í sínum eigin rekstri og rekur lítið ferðaþjónustufyriræki á Ísafirði yfir sumartímann og á veturnar starfsar hann hjá AV pípulögnum. Guðni er leiðsögumaður að mennt og er einnig með kennslugráður í hinum ýmsum vatnaíþróttum. Helstu áhugamál Guðna er nánast öll útivist, veiði og íþróttir. Einnig er það mikið áhugamál að fylgja dætrum hans eftir í þeirra áhugamálum. Guðni brennur fyrir því að sjá Vestfirði og Ísafjarðarbæ vaxa og dafna áfram og vill sjá fólk snúa aftur heim og velja sér að búa hér í sveitarfélaginu okkar. Til þess þarf öflugt atvinnulíf, nægt framboð af húsnæði og traustar samgöngur bæði milli byggðarkjarna og til og frá svæðinu. Við verðum að styrkja skólana og leikskólana okkar á öllum sviðum og gera svæðið aðlaðandi fyrir alla, öflugt íþrótta- og menningarlíf þar sem búseta innan sveitarfélagsins skiptir ekki máli og allir hafa jöfn tækifæri að blómstra sama hvar þeir búa. Mikilvægt finnst mér að hafa fjölbreytt búsetuúrræði sem hentar bæði ungu fólki sem og eldri kynslóðum. Svo telur hann okkur skyldug til að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna á svæðinu en hún má ekki við meiri skerðingu en nú er.

Enska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Enska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Enska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Pólska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Pólska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Pólska: Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

Stefnuskrá Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ

PDF

16.
05
Laugardagur
Laugardagur

Guðmundarbúð - Sindragata 6. Ísafirði

Ísafjarðarbær: Kosningavaka

16.
05
Laugardagur
Laugardagur

Guðmundarbúð - Sindragata 6

Ísafjarðarbær: Kosningakaffi

09.
05
Laugardagur
Laugardagur

Bubbly Bistro & Wine

Ísafjarðarbær: Beint í xBílinn - Pub Quiz með Tinnu Rún og Antoni Helga

07.
05
Fimmtudagur
Fimmtudagur

Fjörugusa

Ísafjarðabær: x-B gusa með Gurrý og Krumma (18+)

25.
04
Laugardagur
Laugardagur

Hafnarstræti 8, Ísafirði

Ísafjarðarbær: Vöfflur á kosningaskrifstofunni

18.
03
Miðvikudagur
Miðvikudagur

Fisherman, Suðureyri

Málefnasmiðja Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ - Suðureyri

17.
03
Þriðjudagur
Þriðjudagur

Bryggjustöðin, Þingeyri

Málefnasmiðja Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ - Þingeyri

16.
03
Mánudagur
Mánudagur

Bryggjukaffi, Flateyri

Málefnasmiðja Framsóknar og óháðra í Ísafjarðarbæ - Flateyri

Framboðslisti í sveitarstjórnarkosningum 2026

1.

Kristján Þór Kristjánsson

Hótelstjóri

2.

Elísabet Samúelsdóttir

Fjármálastjóri

3.

Hannibal Hafberg

Sjávarútvegsfræðingur

4.

Tinna Rún Snorradóttir

Verkfræðingur

5.

Elísabet Margrét Jónasdóttir

Bóndi og fjármálastjóri

6.

Guðni Páll Viktorsson

Ferðaþjónn

7.

Gerður Ágústa Sigmundsdóttir

Hjúkrunarfræðingur og bóndi

8.

Gauti Geirsson

Framkvæmdastjóri

9.

Katarzyna Maliszewska

Sjúkraliði

10.

Sædís Ólöf Þórsdóttir

Framkvæmdastjóri

11.

Guðríður Vala Atladóttir

Nemi

12.

Jóhann Bæring Gunnarsson

Framkvæmdastjóri

13.

Halla Signý Kristjánsdóttir

Verkefnastjóri

14.

Halldór Karl Valsson

Matreiðslumaður

15.

Dýrleif Arna Ómarsdóttir

Hjúkrunarfræðingur

16.

Anton Helgi Guðjónsson

Framkvæmdastjóri

17.

Sigmundur Þórðarson

Húsasmíðameistari

18.

Marzellíus Sveinbjörnsson

Fyrrverandi bæjarfulltrúar

Stjórn Framsóknarfélags
Halla Signý Kristjánsdóttir

Formaður

Jóhann Bæring Gunnarsson

Meðstjórnandi

Elísabet Samúelsdóttir

Gjaldkeri

Gauti Geirsson

Meðstjórnandi

Sædís Ólöf Þórsdóttir

Meðstjórnandi

Viltu taka þátt í starfinu?