Fleiri skemmtilegar staðreyndir um þingflokk Framsóknar
Fylgi Framsóknar hefur ekki verið meira síðan í kosningum 1979 en þá hlaut Framsókn 24,9% og 17 þingmenn. Framsókn fékk síðast 19 þingmenn árið 1963.
Hérna eru nokkar skemmtilegar staðreyndir til viðbótar um þingflokk Framsóknar:
Höskuldur Þór Þórhallsson er reynslumesti þingmaður þingflokksins en hann settist á þing 2007, næst á eftir kemur Eygló Harðardóttir, hún tók sæti Guðna Ágústssonar þegar hann lét af þingmennsku 2008.
Jóhanna María af Vestfjörðum og Þórunn frá Vopnafirði eru báðar með slæmt internetsamband á bóndabæjum sínum og lítið eða ekkert farsímasamband.
Karl Garðarsson er ötull hjólamaður og hjólaði einu sinni frá Kanada niður Norður-Ameríku.
Silja Dögg á sama afmælisdag og Framsókn, 16. desember.
Sigmundur Davíð hefur verið þekktur fyrir að grípa í pensill og mála í frítíma sínum, ein jólin eftir að hann settist á Alþingi sendi hann jólakort þar sem mynd eftir hann prýddi kortið.
Elsa Lára og Sigmundur Davíð eru jafn gömul, bæði fædd árið 1975.
Aðeins skilja 20 dagar að Líneik og Þórunni í aldri en báðar eru fæddar í nóvember 1964.
20% þingflokksins á stórafmæli í ár. Það eru þau Höskuldur, Silja Dögg, Willum Þór og Þorsteinn. Silja Dögg og Höskuldur verða fertug, Willum verður fimmtugur og Þorsteinn sextugur.



