Framboðslisti Framsóknar í Fjarðabyggð samþykktur

Framsóknarfélag Fjarðabyggðar samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar að lista Frjálsra og Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Fjarðabyggð, á fjölmennum fundi í Þórðarbúð á Reyðarfirði mánudagskvöldið 31. mars.

Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar leiðir listan en Eiður Ragnarsson viðskiptafulltrúi, Pálína Margeirsdóttir verslunarmaður, Hulda Sigrún Guðmundsdóttir skólaliði og Svanhvít Yngvadóttir kennari skipa næstu fjögur sæti. Guðmundur Þorgrímsson núverandi bæjarfulltrúi og verktaki skipar heiðurssæti listans.

Framboðslistinn er skipaður eftirtöldum:

  1. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, Norðfirði

  2. Eiður Ragnarsson, viðskiptafullrúi, Reyðarfirði

  3. Pálína Margeirsdóttir, verslunarmaður, Reyðarfirði

  4. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, skólaliði, Fáskrúðsfirði

  5. Svanhvít Yngvadóttir, kennari, Eskifirði

  6. Guðjón Björn Guðbjartsson, nemi, Norðfirði

  7. Tinna Hrönn Smáradóttir, iðjuþjálfi, Fáskrúðsfirði

  8. Þuríður Lilly Sigurðardóttir, nemi, Reyðarfirði

  9. Einar Björnsson, forstjóri, Eskifirði

  10. Jón Kristinn Arngrímsson, matráður, Reyðarfirði

  11. Anton Helgason, framkvæmdastjóri, Stöðvarfirði

  12. Anna Sigríður Karlsdóttir, þroskaþjálfi, Reyðarfirði

  13. Sigfús Vilhjálmsson, útvegsbóndi, Mjóafirði

  14. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjáfi, Norðfirði

  15. Svanbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Eskifirði

  16. Krzysztof Zbigniew Sakaluk, ráðsmaður, Norðfirði

  17. Þorbergur N. Hauksson, varaslökkvistjóri, Eskifirði

  18. Guðmundur Þorgrímsson, verktaki, Fáskrúðsfirði

Á framboðslistanum eru 8 konur og 10 karlar. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut Framsóknarflokkurinn tvo sveitarstjórnarfulltrúa.

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.