Framboðslisti Framsóknar í Grindavík samþykktur
Á aðalfundi Framsóknarfélags Grindavíkur, haldinn 11. mars, var tillaga uppstillinganefndar að skipan framboðslista til sveitarstjórnarkosninga 31. maí n.k. lögð fram og samþykkt. Bryndís Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi og lögfræðingur, verður oddviti listans líkt og fyrir fjórum árum.
Framboðslistann skipa eftirfarandi:
Bryndís Gunnlaugsdóttir, bæjarfulltrúi og lögfræðingur
Ásrún Kristinsdóttir, kennari og deildarstjóri
Páll Jóhann Pálsson, bæjarfulltrúi, alþingismaður og útvegsbóndi
Hjörtur Waltersson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Grindavíkur
Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri
Hilmar Helgason, skipstjóri og bæjarfulltrúi
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
Guðmundur Grétar Karlsson, framhaldsskólakennari
Sæbjörg Erlingsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla
Anton Guðmundsson, matreiðslumaður og slökkviliðsmaður
Eva Björg Sigurðardóttir, snyrtifræðingur
Hörður Sigurðsson, sjómaður
Unnar Á. Magnússon, vélsmiður
Sæbjörg M. Vilmundardóttir, heldri borgari
Í síðustu sveitarstjórnarkosningum hlaut Framsóknarflokkurinn 3 bæjarfulltrúa.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



