Framboðslisti Framsóknar í Hafnarfirði samþykktur
Á fjölmennum fundi Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði 15. apríl var samþykktur framboðslisti Framsóknarflokksins fyrir sveitastjórnakosningarnar í vor. Ágúst Bjarni Garðarsson, stjórnmálafræðingur, leiðir framboðslistann, Jenný Jóakimsdóttir, viðskiptafræðingur, er í öðru sæti og Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri og varaþingmaður, er í því þriðja. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra skipar heiðurssæti listans.
Kosningaskrifstofa B-lista Framsóknarflokksins er við Thorsplan að Linnetstíg 2 í Hafnarfirði.
Framboðslistann skipa eftirtaldir:
Ágúst Bjarni Garðarsson, stjórnmálafræðingur
Jenný Jóakimsdóttir, viðskiptafræðingur
Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri og varaþingmaður
Kristín Elísabet Gunnarsdóttir, fjölmiðlafræðingur
Njóla Elísdóttir, hjúkrunarfræðingur
Valdimar Sigurjónsson, viðskiptalögfræðingur
Margrét Össurardóttir, grunnskólakennari
Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson, viðskiptafræðingur
Linda Hrönn Þórisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri og meistaranemi
Sveinn Heiðar Jóhannesson, kjötiðnaðarmaður og söluráðgjafi
Iuliana Kalenikova, lögfræðingur
Garðar Smári Gunnarsson, vöruhússtjóri
Árni Rúnar Árnason, tækjamaður í Suðurbæjarlaug
Bjarney Grendal Jóhannesdóttir, grunnskólakennari
Sigurbjörn Richter, framhaldsskólanemi
Sólrún Þrastardóttir, BEd í kennslufræðum og háskólanemi
Kristján Rafn Heiðarsson, matreiðslumeistari og kennari
Ingunn Mai Friðleifsdóttir, tannlæknir
Ingvar Kristinsson, formaður fimleikafélagsins Björk
Elín Karlsdóttir, matráðskona
Stefán Hákonarson, smiður
Eygló Harðardóttir, ráðherra
Listinn er paralisti og skipa hann 11 konur og 11 karlar. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum vantaði Framsóknarflokkinn 15 atkvæði upp á að ná inn fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.


