Framboðslisti Framsóknarflokks og óháðra á Vopnafirði samþykktur
Framboðslisti Framsóknarfélags Vopnafjarðar og óháðra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014 var samþykktur á opnum fundi þann 4. maí. Bárður Jónason, verkstjóri og oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps, leiðir listann. Listi Framsóknarfélagsins og óháðra átti þrjá sveitarstjórnarfulltrúa á Vopnafirði á síðasta kjörtímabili.
Listann skipa eftirtaldir:
Bárður Jónasson, verkstjóri og oddviti
Hrund Snorradóttir, viðskiptafræðingur
Magnús Þór Róbertsson, vinnslustjóri
Víglundur Páll Einarsson, verkstjóri
Sigríður Bragadóttir, bóndi
Linda Björk Stefánsdóttir, verkakona
Sigurjón Haukur Hauksson, bóndi
Elísa Joensen Creed, verkakona
Hreiðar Geirsson, verkamaður
Dorota Joanna Burba, verslunarstjóri
Hafþór R. Róbertsson, kennari
Árni Hlynur Magnússon, rafverktaki
Helgi Sigurðsson, bóndi
Þórunn Egilsdóttir, alþingismaður og bóndi
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



