Framsókn er næst stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu
Fréttir

Í sveitarstjórnarkosningunum 2026 bauð Framsókn fram í 26 sveitarfélögum og náði inn fulltrúa í þeim öllum, eða 55 fulltrúum talsins, og er þar af leiðandi næsta stærsti stjórnmálaflokkur Íslands á sveitarstjórnarstiginu. Einnig voru margir meðlimir í Framsókn á blönduðum listum í öðrum sveitarfélögum og hlutu kjör.
Í kosningabaráttunni tóku þátt hundruðir frambjóðenda og sjálfboðaliða og eiga þau sérstakar þakkir skildar fyrir öfluga og óeigingjarna vinnu. Þessi frábæra niðurstaða er afrakstur vinnu okkar allra.
,,Við getum verið mjög stolt af þeim árangri sem náðist! Slíkur árangur fellur ekki af himnum ofan, þið hafið með samstilltu átaki, framúrskarandi vinnusemi og ástríðu tryggt að Framsókn er áfram sá burðarás á sveitarstjórnarstiginu sem flokkurinn hefur alltaf verið,” segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar í kveðju til flokksfélaga.

Sveitarstjórnarfulltrúarnir
Þeir sveitarstjórnarfulltrúar sem hlutu kjör á B-listum voru:
Akraneskaupstaður:
Ragnar Baldvin Sæmundsson
Liv Åse Skarstad
Akureyrarbær:
Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Gunnar Már Gunnarsson
Borgarbyggð:
Davíð Sigurðsson
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Dalvíkurbyggð:
Monika Margrét Stefánsdóttir
Fjarðabyggð:
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Birgir Jónsson
Garðabær:
Hlynur Bæringsson
Grindavík:
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Þorleifur Ólafsdóttir
Inga Fanney Rúnarsdóttir
Grundarfjörður:
Fannar Þór Þorfinnsson
Signý Gunnarsdóttir
Aðalsteinn Jósepsson
Þuríður Gía Jóhannesdóttir
Hafnarfjörður:
Valdimar Víðisson
Kolbrún Magnúsdóttir
Árni Rúnar Árnason
Húnabyggð:
Grímur Rúnar Lárusson
Jenný Lind Gunnarsdóttir
Helgi Páll Gíslason
Húnaþing vestra:
Sigurður Líndal Þórisson
Nína Axelsdóttir
Hveragerði:
Marta Rut Ólafsdóttir
Ísafjarðarbær:
Kristján Þór Kristjánsson
Elísabet Samúelsdóttir
Stefán Hannibal Hafberg
Tinna Rún Snorradóttir
Kópavogur:
Orri V. Hlöðversson
Mosfellsbær:
Sævar Birgisson
Halla Karen Kristjánsdóttir
Múlaþing:
Jónína Brynjólfsdóttir
Eiður Ragnarsson
Þórey Birna Jónsdóttir
Norðurþing:
Eysteinn Heiðar Kristjánsson
Bylgja Steingrímsdóttir
Rangárþing eystra:
Rafn Bergsson
Bjarki Oddsson
Reykjanesbær:
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Róbert Jóhann Guðmundsson
Díana Hilmarsdóttir
Reykjavík:
Einar Þorsteinsson
Skagaströnd:
Eydís Inga Sigurjónsdóttir
Strandabyggð:
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson
Suðurnesjabær:
Anton Kristinn Guðmundsson
Magnús Sigfús Magnússon
Sveitarfélagið Árborg:
Matthías Bjarnason
Ellý Tómasdóttir
Sveitarfélagið Hornafjörður:
Hjalti Þór Vignisson
Ingibjörg Sveinsdóttir
Björgvin Óskar Sigurjónsson
Skagafjörður:
Einar Eðvald Einarsson
Hrund Pétursdóttir


