Þungt högg fyrir heimilin í fjárlagafrumvarpinu – Heimilisátt Framsóknar
Fréttir

Í dag kynnti Framsókn tillögur sínar og sjónarmið vegna fjárlaga ársins 2027 undir yfirskriftinni Heimilissáttin. Framsókn telur að óveðurský hrannist upp í efnahagslífinu og að almenningur og atvinnulíf finni nú verulega fyrir slakri efnahagsstjórn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Flokkurinn hefur áhyggjur af aðgerða- og forystuleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart forsendubresti kjarasamninga og þeim áformum sem birtast í fjárlagafrumvarpinu. Framsókn telur þau hvorki skynsöm né gagnleg í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Sérstakar áhyggjur snúa að auknum byrðum á heimilin vegna skatta- og gjaldahækkana, rýrnunar barnabóta og afnáms vaxtabóta, ásamt auknum vaxtakostnaði vegna tafa á vaxtalækkunum.
Höggið á heimilið nemur 676 þúsund krónum á tveimur árum
Framsókn hefur greint áhrif fjárlagafrumvarpsins á heimilin. Greiningin bendir til þess að höggið verði þungt, sérstaklega fyrir tekjulægri fjölskyldur. Útreikningarnir sýna hvernig gjaldahækkanir, breytingar á bótum og skattviðmiðum og áhrif á lán leggjast saman hjá heimilum.
Í dæmi um hjón með tvö börn, 45 milljóna króna húsnæðislán og áætlaðar samanlagðar mánaðartekjur upp á 1,33 milljónir króna fyrir skatt árið 2027 nemur reiknuð viðbótarbyrði 343,5 þúsund krónum árið 2027 og 332,2 þúsund krónum árið 2028. Samkvæmt forsendum greiningarinnar nemur höggið því samtals um 676 þúsund krónum á tveimur árum.
Fjárhæðirnar ná bæði til aukinna útgjalda og tekjumissis og áhrifa á lán, þar á meðal hækkunar verðtryggðrar skuldar. Þær eru því ekki að öllu leyti útgjöld sem greiðast á tímabilinu.
Framsókn telur mikilvægt að fara aðra leið í þeirri fjárlagavinnu sem fram undan er á Alþingi. Markmiðið sé að ná verðbólgu hraðar niður, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og auka verðmætasköpun til lengri tíma.
2,5%, fyrirsjáanleg gjaldtaka og stuðningur við heimilin
Framsókn leggur til að 2,5% viðmið gildi um hækkanir krónutölugjalda og kílómetragjalds. Jafnframt verði unnið að samræmdum og fyrirsjáanlegum viðmiðum um gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga fyrir árin 2027–2028.
Flokkurinn leggur einnig til að barnabætur fylgi verðlagi, vaxtabætur haldist og skattleysismörk og skattþrep hækki um 0,5% umfram verðlag. Fyrri hækkun komugjalda verði afturkölluð, fyrirhuguð hækkun bankaskatts verði helminguð og virðisaukaskattur á baðlón verði áfram 11%.
Samhliða verði horfið frá fyrirhuguðu aðhaldi í menntun, rannsóknum og nýsköpun. Ísland þurfi á þróttmiklu atvinnulífi að halda til að standa undir velferðarkerfinu.
Með tillögum Framsóknar lækkar reiknuð viðbótarbyrði heimilisins í dæminu úr 343,5 þúsund krónum í 119,9 þúsund krónur árið 2027. Það er lækkun um 224 þúsund krónur á einu ári, miðað við forsendur greiningarinnar.
Raunhæfar forsendur og samvinna um lausnir
Í ljósi þróunar efnahagsmála telur Framsókn brýnt að endurmeta efnahagsforsendur fjárlagafrumvarpsins. Flokkurinn kallar eftir samráði þvert á flokka og við aðila vinnumarkaðarins um forgangsröðun, aðgerðir og fjármögnun.
Tillögunum er ætlað að mýkja lendingu hagkerfisins og dempa höggið á heimilin. Framsókn er samvinnuflokkur og er tilbúin til samstarfs um skynsamar lausnir fyrir heimilin í landinu.




