Hvað fáum við fyrir reikninginn?
Greinar

Það er jákvætt að nú sé stefnt að auknu samræmi og hófsemi í fyrirhuguðum gjaldahækkunum ríkis og sveitarfélaga. Það er einmitt sú nálgun sem við í Framsókn lögðum til sl. vor. Ákvarðanir hins opinbera þurfa að taka mið hver af annarri og styðja sameiginleg markmið um minni verðbólgu og betri afkomu heimilanna.
Stjórnvöld þurfa á hinn bóginn einnig að geta svarað bæði fyrir reikninginn sem heimilin greiða og þjónustuna sem þau fá. Samræming gjalda verður því að byggjast á mati á áhrifum þeirra á fjárhag heimilanna og á rekstur og þjónustu hins opinbera.
Við fögnum því að þessi sjónarmið fái aukinn hljómgrunn. Árangurinn skiptir meira máli en hver átti fyrsta orðið. Nú þarf að sýna hvað samræmingin þýðir í framkvæmd.
Margar hækkanir, einn heildarreikningur
Einstakar gjaldahækkanir geta átt sér málefnalegar skýringar. Kostnaður við þjónustu breytist og rekstur ríkis og sveitarfélaga þarf að ganga upp. En margar rökstuddar ákvarðanir geta saman orðið íþyngjandi. Hver stofnun horfir á sitt verkefni og hver opinber aðili á sín afkomu- og skuldamarkmið.
Heimilin greiða hins vegar alla reikningana úr sama potti. Þau finna fyrir samanlögðum áhrifum ákvarðananna, óháð því hver innheimtir. Sama gildir um fyrirtækin sem þurfa að standa undir launum, fjárfestingum og daglegum rekstri.
Þess vegna þarf að skoða gjöld, skatta og bætur saman. Breyting á einum stað getur étið upp ávinning sem verður til annars staðar.
Leiðin að aðhaldi skiptir máli
Traust ríkisfjármál eru mikilvæg forsenda stöðugleika. Aðhald getur dregið úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi og skapað betri skilyrði fyrir lækkun vaxta. Þannig getur ábyrg fjármálastjórn létt undir með skuldsettum heimilum og fyrirtækjum.
En það skiptir máli hvernig aðhaldinu er náð. Hækkun neysluskatta og opinberra gjaldskráa getur hækkað verðlag beint, þótt aukin skattheimta dragi jafnframt úr eftirspurn. Meta þarf þessi áhrif saman. Betri afkoma ríkissjóðs segir ekki ein og sér alla söguna um áhrif aðgerðanna á verðbólgu og kaupmátt.
Hækkanir sem skila sér í vísitölu neysluverðs geta jafnframt aukið höfuðstól verðtryggðra lána. Áhrifin takmarkast þá ekki við reikning mánaðarins heldur geta einnig birst í meiri skuldum til framtíðar.
Hófsemi í gjaldtöku verður því að fylgja skýr forgangsröðun í opinberum rekstri. Ef fallið er frá fyrirhuguðum tekjum þarf að sýna hvernig því er mætt. Verkefnið er að ná nauðsynlegum árangri í ríkisfjármálum með sem minnstum skaða fyrir kaupmátt, atvinnustarfsemi og verðstöðugleika.
Sama prósenta dugar ekki
Samræming felst ekki sjálfkrafa í því að allir hækki gjöld á sama tíma eða um sömu prósentu. Spyrja þarf hvaða hækkanir séu nauðsynlegar, hvort hægt sé að takmarka þær og hvort aukin hagkvæmni geti dregið úr þörfinni.
Sama hækkun vegur misþungt eftir tekjum, búsetu og fjölskylduaðstæðum. Heimili sem þarf tvo bíla til að sækja vinnu og þjónustu hefur annað svigrúm en heimili sem getur nýtt almenningssamgöngur. Samræming verður að taka mið af þessum veruleika.
Þegar stjórnvöld kalla eftir hófsemi í verðlagsákvörðunum þurfa eigin ákvarðanir að styðja þau skilaboð. Það styrkir trúverðugleika hagstjórnarinnar og samstarf við sveitarfélög og aðila vinnumarkaðarins.
Frá umræðu til framkvæmda
Við í Framsókn höfum bent á aukinn kostnað sem fyrirhugaðar breytingar opinberra gjalda geta lagt á heimilin. Nú þarf að tryggja að heildarmyndin liggi fyrir áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Gegnsæi í fjármálum hins opinbera er grundvallaratriði.
Áður en Alþingi afgreiðir fjárlög þarf að birta aðgengilegt mat á samanlögðum áhrifum skatta, gjalda og bótabreytinga á ólíkar heimilisgerðir. Þar þarf einnig að taka mið af fyrirhuguðum gjaldahækkunum sveitarfélaga eftir því sem upplýsingar liggja fyrir. Heimili og fyrirtæki þurfa tímanlegar upplýsingar til að geta skipulagt sig.
Og greina þarf áhrifin
Jafnframt þarf að meta áhrif samræmingarinnar á rekstur og þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Það nægir ekki að lýsa yfir að gjaldahækkunum verði haldið í skefjum. Sýna þarf hvernig minni tekjum en áætlað var verði mætt og hvort það kalli á hagræðingu, breytta forgangsröðun eða skerðingu þjónustu. Lægri gjöld gagnast heimilunum síður ef á móti kemur lakari þjónusta sem þau þurfa að kaupa annars staðar.
Slíkt heildarmat leysir okkur ekki undan erfiðum ákvörðunum. Það gerir okkur kleift að taka þær á betri forsendum. Stjórnvöld þurfa að geta svarað bæði fyrir reikninginn sem heimilin greiða og þjónustuna sem þau fá.
Höfundur er þingmaður Framsóknar.
Stefán Vagn Stefánsson
Greinin birtist fyrst á visir.is 12. október 2026



