Ingibjörg Isaksen sendi fyrirspurn á heilbrigðisráðherra um stöðu heimilislækna og aðgengi að heilsugæslu
Fréttir

Birt hefur verið fyrirspurn á vef Alþingis frá Ingibjörgu Isaksen til heilbrigðisráðherra um stöðu heimilislækna og aðgengi að heilsugæslu. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
1. Hver hefur fjöldi fastráðinna heimilislækna verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
2. Hve mörg ársstörf heimilislækna hafa verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
3. Hver hefur fjöldi íbúa á þjónustusvæði hverrar heilsugæslustöðvar verið á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
4. Hversu margir íbúar hafa verið skráðir með fastan heimilislækni við hverja heilsugæslustöð á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
5. Hver hefur biðtími eftir tíma hjá heimilislækni verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
6. Hve margir gestalæknar hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu mörgum ársstörfum hafa þeir sinnt? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum, auk upplýsinga um hversu lengi stöður hafa verið mannaðar með tímabundnum ráðningum í stað fastráðninga.
7. Hve margir læknanemar, kandídatar eða læknar í sérnámi hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu stórum hluta þjónustunnar hafa þeir sinnt, eftir því sem gögn leyfa? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.

