Jólafundur kvennadeildar Framsóknarfélags Reykjavíkur
Kvennadeild Framsóknarfélags Reykjavíkur heldur jólafundinn sinn fimmtudaginn 5. desember í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33, kl. 20:00.
Fundurinn verður með hefðbundnu sniði eins og undanfarin ár – rjúkandi súkkulaði með rjóma, piparkökur, stollen með smjöri og ostar. Málsháttasiðurinn verður í heiðri hafður og biðjum við fólk að muna eftir að taka pakka með sér til fundarins.
Dagskrá:
Guðni Ágústsson les upp úr ný útkominni bók sinni
Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sem skipar 2. sæti lista Framsóknarflokksins til borgarstjórnarkosninga les jólasögu
Valgerður Sveinsdóttir, sem skipar 3. sæti lista Framsóknarflokksins til borgarstjórnarkosninga les ljóð
Sigrún Magnúsdóttir, þingmaður stýrir málsháttaatriði
Óvæntar uppákomur
Hlökkum til að sjá ykkur öll í aðventu – og jólaskapi
Kvennadeild Framsóknarfélags Reykjavíkur



