Kjósendur treysta Framsókn til verka

Greinar


Sveitarstjórnarkosningarnar 2026 marka mikilvægan áfanga fyrir Framsókn og staðfesta sterka stöðu flokksins víða um landið. Við buðum fram í 26 sveitarfélögum og náðum kjöri í þeim öllum, sem gera 55 fulltrúar. Af því leiðir að Framsókn er með næstflesta kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu og endurspegla úrslitin skýran stuðning við stefnu flokksins um samvinnu, ábyrgð og umbætur.

Að auki vann Framsóknarflokkurinn mikilvæga sigra í mörgum sveitarfélögum. Þar má nefna sögulega sigra í Hafnarfirði og Ísafirði, sterka stöðu á Höfn í Hornafirði og afar góða sigra bæði í Grundarfirði og Grindavík. Víða héldum við okkar sterku stöðu og unnum annars staðar varnarsigur. Niðurstaðan sýnir að fólk um allt land treystir Framsókn til að leiða áfram uppbyggingu og þróun síns nærumhverfis.

Það sem einkennir Framsókn er að flokkurinn hefur ávallt lagt áherslu á að hlusta á íbúa og vinna með samfélaginu sjálfu. Sveitarstjórnarstigið er einmitt vettvangurinn þar sem nálægðin við fólkið skiptir mestu máli. Þar þarf að taka ákvarðanir sem hafa bein áhrif á daglegt líf fjölskyldna, atvinnulíf, skólamál, skipulag og þjónustu. Framsókn hefur sýnt að hún getur sameinað ólík sjónarmið og fundið raunhæfar lausnir sem þjóna heildinni.

Stefna flokksins er sígild vegna þess að hún byggist á gildum sem standast tímans tönn. Samvinna er ekki aðeins slagorð heldur aðferðafræði. Hún snýst um að fólk, fyrirtæki og sveitarfélög vinni saman að sameiginlegum markmiðum. Á tímum hraðra breytinga og aukinna áskorana skiptir það meira máli en nokkru sinni fyrr að hafa stjórnmálaafl sem setur samfélagið í fyrsta sæti.

Framsókn mun halda áfram að vinna að öflugum og fjölbreyttum byggðum um land allt. Flokkurinn mun leggja áherslu á að styrkja innviði, efla menntun, styðja við atvinnulíf og tryggja að öll sveitarfélög hafi tækifæri til vaxtar og framfara. Úrslit kosninganna eru skýr skilaboð frá kjósendum um að þessi sýn eigi erindi við landsmenn.

Það er því bjart fram undan. Með samvinnu að leiðarljósi mun Framsókn halda áfram að bæta samfélag sitt um land allt.

Við Framsóknarfólk eru þakklát fyrir traustið og munum leggja okkur öll fram við að vinna að betra samfélagi.


Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.

Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Greinin birtist í Morgunblaðinu 19. maí 2026