Kveðja frá nýrri forystu
Kæru félagar.
Ný forysta Framsóknar vill þakka fyrir traustið sem okkur er sýnt og árangursríkt flokksþing.
Við stöndum á tímamótum sem stjórnmálaafl. Ákall er um skýrari stefnu og nýjum vinnubrögðum. Endurreisn flokksins byrjar heima og snýr að því að efla grasrótina, tengja betur saman sveitarstjórnarstigið og landsmál. Við verðum að vera tilbúin að ræða af hreinskilni þær áskoranir sem brenna á fólkinu í landinu og hlusta.
Stærsta sameiginlega verkefni okkar eru næstu sveitarstjórnarkosningar. Á sveitarstjórnarstiginu liggur mikil reynsla og styrkur. Við blásum til sóknar um land allt enda má sjá árangur af störfum okkar. 90 daga áætlunin í tengslum við sveitarstjórnarkosningar er á lokametrunum og verður kynnt eftir kjördæmaviku þingflokksins.
Við erum sannfærð um að ný tækifæri skapist til sóknar í hverju einasta sveitarfélagi með markvissri stefnu, skýrum markmiðum og raunhæfum aðgerðum.
Við hlökkum til samstarfsins við hvert og eitt ykkar. Við munum leggja dag og nótt í að sækja fram fyrir flokkinn okkar.
Með kveðju
Forysta Framsóknar



