Kynning á frambjóðanda: Elínborg Ingvarsdóttir

Fólkið

Hún Elínborg skipar 4. sætið á listanum okkar og við erum afar lukkuleg með að hafa fengið hennar krafta með okkur og eiga þeir án vafa eftir að nýtast vel í komandi uppbyggingu. Elínborg er bæði forstöðumaður Þrumunnar og umsjónarmaður Ungmennaráðs en það eru sennilega fáir Grindvíkingar sem brenna jafn heitt fyrir málum barna- og unglinga og hún.

Svo er hún líka ein af nokkrum fulltrúum Ásgarðsættarinnar á listanum. Hvort kjósendur telja það kost eða löst verður bara að koma í ljós!

Nafn: Elínborg Ingvarsdóttir
Aldur: Verð 36 ára 25. apríl
Starf: Tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og umsjónamaður Ungmennaráðs Grindavíkurbæjar. Ber reyndar enn titilinn forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar og held mig líka fast við hann


Fjölskylduhagir: Gift Steinari Sindra Agnarssyni og á tvær dætur, Elena Ása 5 ára og Una Matthildur að verða 3 ára.

Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Endurvekja Menningarvikuna og halda góða heimatónleika eins og frændur okkar hinum megin við Þorbjörn gera svo vel.

Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár: Í blóma og iðandi af lífi. Skólastarf sem styður við styrkleika barna og ungmenna, þar sem við nýtum þessa mögnuðu náttúru sem umlykur okkur, alla söguna og vinnuaflið í bænum, þar sem allir eru klárir að leggja hendur á plóg. Samheldið samfélag og áfram besti íþróttabær á landinu þar sem öll börn geta stundað íþróttir.

Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Þórdís Kolbrún er glæsileg kona og líka gift Grindvíkingi
Uppáhalds lið í enska: Manchester United að sjálfsögðu
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends og Stranger things
Uppáhalds hljómsveit: Hjálmar og Alt-J. Svo er ég mikið búin að vera að hlusta á Khruangbin.
Uppáhalds staður í Grindavík: Bótin, Þorbjörninn og hjartað okkar, íþróttamiðstöðin og fótboltasvæðið.