Kynning á frambjóðanda: Þorleifur Ólafsson

Fólkið

Á næstu dögum ætlum við að rúlla út laufléttum kynningum á frambjóðendunum okkar þar sem við fáum aðeins að kynnast þeim betur. Lalli ætlar að ríða á vaðið en hann skipar 2. sætið á listanum okkar í vor og hann er sko tilbúinn í slaginn, enda mikill baráttumaður.

Nafn: Þorleifur Ólafsson
Aldur: 41
Starf: Þjálfari, MBA-nemi og kennari
Fjölskylduhagir: Giftur Þórkötlu Sif Albertsdóttur og saman eigum við fjögur börn. Þórey Teu, Albert, Jóhann Daða og Sif

Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?
Halda Sjóarann Síkáta í blíðskapar veðri. Allir Grindvíkingar komnir saman í söng og leik.

Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?
Skóla og tómstundastarf í blóma, byrjað að byggja ný hús í Grindavík, stærsti ferðamannastaður landsins og við komin á gott ról hvað varðar íþróttir barna og unglinga í Grindavík.

Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Villi Árna
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Seinfeld
Uppáhalds hljómsveit: Coldplay
Uppáhalds staður í Grindavík: Íþróttahúsið, - Gamli salur.