Kynning á frambjóðanda: Valgerður Jennýjardóttir

Fólkið

Algengasta nafnið á listanum okkar í ár er Valgerður og nú kynnum við aðra þeirra til leiks.

Þetta er ekki fyrsta ródeóið hennar Valgerðar í bæjarpólítík en hún hefur verið nefndarmaður í félagsmálanefnd hvert kjörtímabilið á eftir öðru, og einnig setið í stjórn UMFG og fimleikadeildarinnar svo eitthvað sé nefnt. Svo var hún líka í skátunum!

Nafn: Valgerður Jennýjardóttir

Aldur: 41

Starf: Leikskólaliði

Fjölskylduhagir: Gift Sigurði Magnúsi Árnasyni og saman eigum við fjögur börn, Emmu Lív, Matthildi Yrsu, Jökul Karl og Rúnar Þór.


Ef þú fengir að vera einvaldur yfir Grindavík í einn dag, hvað myndir þú gera?

Leikskóla frá 12 mánaða og gjaldfrjáls í 6 tíma. Svo myndi ég setja á frístund að hausti fyrir þau börn sem eru að byrja í fyrsta bekk.


Hvar sérð þú Grindavík eftir fjögur ár?

Blómstrandi bæ fullan af lífi, fjöri og tækifærum.


Topp fimm:

Fallegasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi: Mér finnst hún frænka mín, Þórdís Kolbrún, alltaf svo fín og flott.

Uppáhalds lið í enska: Það var gerður samningur milli okkar skötuhjúa þegar við byrjuðum saman fjölskyldu að við myndum skipta á milli okkar trúarbragða, börnin eru alin upp sem Poolarar og skírð í þjóðkirkjuna.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends.

Uppáhalds hljómsveit: Engin ein, ég flakka á milli sinfóníu og þungarokks.

Uppáhalds staður í Grindavík: Handavinnustóllinn minn í stofunni á Árnastíg með útsýni yfir bæinn.