Listi Framsóknar í Norðurþingi samþykktur
Fjölmennur félagsfundur í Framsóknarfélag Þingeyinga á Húsavík samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi.
Gunnlaugur Stefánsson forseti bæjarstjórnar leiðir listann en bæjarfulltrúarnir Soffía Helgadóttir og Hjálmar Bogi Hafliðason skipa 2. og 3. sætið og ný á listanum í næstu 5 sætum eru Hróðný Lund, hjúkrunarfræðingur, Gunnar Páll Baldursson, hafnarvörður, Anný Peta Sigmundsdóttir, sálfræðingur, Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri og Áslaug Guðmundsdóttir, íþróttakennari. Jón Grímsson, núverandi bæjarfulltrúi skipar heiðurssæti listans.
Listann skipa eftirtaldir:
Gunnlaugur Stefánsson, forseti bæjarstjórnar og framkvæmdastjóri, Húsavík
Soffía Helgadóttir, bæjarfulltrúi og hagfræðingur, Húsavík
Hjálmar Bogi Hafliðason, bæjarfulltrúi og kennari, Húsavík
Hróðný Lund, hjúkrunarfræðingur, Húsavík
Gunnar Páll Baldursson, hafnarvörður, Raufarhöfn
Anný Peta Sigmundsdóttir, sálfræðingur, Húsavík
Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri, Kópasker
Áslaug Guðmundsdóttir, íþróttakennari, Húsavík
Aðalsteinn Júlíusson, lögreglumaður, Húsavík
Sigríður Benediktsdóttir, bankaritari, Kópasker
Anna Björg Lindberg Pálsdóttir, tómstundafulltrúi, Húsavík
Hjörvar Gunnarsson, nemi, Húsavík
Aðalsteinn J. Halldórsson, stjórnsýslufræðingur, Húsavík
María Guðrún Jónsdóttir, verkakona, Húsavík
Anna Sigrún Mikaelsdóttir, formaður FEBH, Húsavík
Birna Björnsdóttir, varabæjarfulltrúi og kennari, Raufarhöfn
Jónína Á. Hallgrímsdóttir, fyrrv. sérkennari, Húsavík
Jón Grímsson, bæjarfulltrúi, Kópasker
Listann skipa átta karlar og tíu konur. Í efstu fjórtán sætum er jafnt kynjahlutfall. Framsóknarflokkurinn er með fjóra fulltrúa í bæjarstjórn í dag.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



