
Þá er loksins komið að því að birta listann okkar!
,,Ég er ótrúlega þakklát og stolt að fá að leiða lista Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí næstkomandi
Við erum með frábæran og fjölbreyttan hóp, bæði nýtt og ungt fólk ásamt reynslumiklum einstaklingum. Það er mikil orka og vilji í hópnum og ég hlakka mjög til að vinna með þessu fólki á næstu vikum og árum.
Það sem sameinar okkur er einfalt:
Við viljum öll gera góða samfélagið okkar enn betra.
Málefnavinnan fer af stað strax eftir páska og við ætlum að leggja okkur fram, hlusta og vinna af heilindum.
Takk kærlega fyrir traustið, ég ætla að standa undir því með fullum krafti"
Monika Margrét Stefánsdóttir, oddviti



