Ný forysta kjörin á 38. flokksþingi Framsóknar

Um helgina var 38. flokksþing Framsóknar þar sem kjörin var ný forysta og glæsilegur málefnapakki samþykktur.

  • Lilja Dögg Alfreðsdóttir var kjörin formaður.

  • Stefán Vagn Stefánsson var kjörinn varaformaður.

  • Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir var kjörin ritari.

Á hátíðarkvöldverði Flokksþings voru einnig veitt verðlaun og viðurkenningar.

  • Jafnréttisverðlaun hlaut Dagbjört Höskuldsdóttir.

  • Bjartsýnisverðlaun hlaut Guðmundur Fylkisson.

Gullmerki Framsóknar hlutu tvenn hjón: 

  • Ólafía Ingólfsdóttir og Guðmundur Elíasson

  • Sveinn Bernódusson og Sigríður Káradóttir

Við þökkum ykkur fyrir frábæra helgi!

Málefnapakkinn sem samþykktur var verður settur á heimasíðuna á næstu dögum eftir yfirlestur.