Ræða varaformanns Framsóknar á miðstjórnarfundi 7. nóvember 2026

Tilkynningar

Fundarstjórar, formaður og kæru miðstjórnarfulltrúar.

Það er afar ánægjulegt að vera hér með ykkur í dag á Laugarbakka í Miðfirði, á svo vel sóttum miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins.

Það er hvorki sjálfsagt né sjálfgefið að fólk gefi tíma sinn og krafta til samfélagsstarfa. Þvert á móti hefur það orðið sífellt erfiðara að fá fólk til að taka að sér ábyrgðarstörf og leggja sitt af mörkum í þágu samfélagsins. Þetta þekkjum við úr íþróttafélögum, Rotary, Lions, húsfélögum og auðvitað stjórnmálunum.

Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir eru hér saman komnir í dag.

Við fengum líka skýra áminningu um styrk okkar og kraft í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Þegar á reynir og verkefnin kalla eru hundruð einstaklinga tilbúin að stíga fram, gefa af tíma sínum og leggja baráttunni lið. Fólk sem trúir á hugsjónir Framsóknar og vill hafa áhrif á samfélagið sitt.

Án þessa fólks væri enginn Framsóknarflokkur. Án ykkar væri engin Framsókn.

Sveitarstjórnarkosningarnar síðasta vor gengu vel og sýndu svo ekki verður um villst þann mikla mannauð sem býr í flokknum. Þar sáum við kraftinn, eljusemina og dugnaðinn sem einkenna okkar fólk.

Niðurstaðan var sú að Framsókn er nú næststærsti stjórnmálaflokkurinn á sveitarstjórnarstiginu.

Það komu niðurstöðurnar mörgum á óvart, ekki síst þeim sem hafa kallað sig stjórnmálasérfræðinga og jafnvel lýst því yfir að erindi Framsóknar í íslensk stjórnmál væri á enda og eftirspurn eftir flokknum lítil sem engin.

Þær spár reyndust rangar.

Við unnum glæsilega sigra víða um land, bættum við okkur fylgi frá kosningunum 2022 og tryggðum okkur hreina meirihluta á nokkrum stöðum.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka ykkur öllum fyrir ykkar framlag til þeirrar baráttu.

Það var ánægjulegt að ferðast um landið í aðdraganda kosninganna, hitta okkar fólk, endurnýja kynni við gamla vini og kynnast öllum þeim fjölmörgu nýju frambjóðendum sem völdu Framsókn sem sinn flokk og sína leið til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt.

Endurnýjun er okkur nauðsynleg. Þar höfum við náð góðum árangri og þurfum að halda áfram á þeirri braut.

Mig langar einnig að nefna sérstaklega unga fólkið okkar í Framsókn.

Ég vil hrósa þeim fyrir þeirra störf, dugnað og elju og hvetja þau áfram til dáða.

Það skiptir máli að ungt fólk hafi rödd í stjórnmálum og taki virkan þátt í mótun framtíðarinnar. Við fengum skýrt dæmi um það í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evrópumál í ágúst.

Þar skipti vinnan sem ungir framsóknarmenn lögðu á sig miklu máli. Þau náðu til ungra kjósenda, komu okkar skilaboðum á framfæri og áttu mikilvægan þátt í því að tryggja niðurstöðuna okkur í vil á lokasprettinum.

Þetta sýnir hvað öflugt ungt fólk getur haft mikil áhrif þegar það fær tækifæri og vettvang til að láta til sín taka.

Ég legg til að við klöppum fyrir unga fólkinu okkar – framtíð Framsóknarflokksins!

En hvað er það sem einkennir okkur í Framsókn? Hvað er það sem fær fólk til að setja X við B á kjördag?

Það eru fyrst og fremst einstaklingarnir okkar. Frambjóðendurnir, fólkið sem stendur með flokknum og vinnur að framgangi hans um allt land.

En það er líka stefna okkar og sú nálgun sem við höfum staðið fyrir í íslenskum stjórnmálum.

Framsókn hefur verið og á að vera öfgalaus, lausnamiðaður samvinnuflokkur. Flokkur sem fólk treystir til forystu og vill vinna með.

Grunngildi flokksins hafa staðist tímans tönn. Við höfum að sjálfsögðu lagað okkur að breyttum samfélagsaðstæðum, eins og eðlilegt er, en grundvallarsýn okkar hefur haldist óbreytt.

Vinna. Vöxtur. Velferð.

Þetta eru ekki bara þrjú orð. Þetta er grundvöllur þeirrar samfélagssýnar sem Framsókn hefur boðað og þarf að standa vörð um.

En hvað þýðir þetta í raun og hvers vegna skiptir það máli?

Við þurfum ekki að leita langt til að sjá hversu ólíka sýn Framsókn hefur á efnahagsmálin miðað við þá stefnu sem núverandi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur boðað.

Stefna ríkisstjórnarinnar hefur í síauknum mæli byggst á aukinni skattheimtu á fjölskyldur og fyrirtæki landsins. Hugmyndin virðist vera sú að með auknum skatttekjum megi fjármagna velferðina, ná niður verðbólgu og lækka vexti.

En hver er árangurinn?

Hann er ekki sá sem lofað var.

Við búum við um 6% verðbólgu, 8% vexti, mikið atvinnuleysi, stöðnun í atvinnuvegafjárfestingu og boðaðan niðurskurð í opinberri þjónustu á næsta ári.

Eitt ár hefur tapast í baráttunni við verðbólguna, með tilheyrandi kostnaði fyrir heimili landsins og atvinnulífið.

Slagorð ríkisstjórnarinnar um sleggju, verðmætasköpunarhaust og að ræsa vélarnar hafa ekki skilað þeim árangri sem væntingar stóðu til.

Og nú er það núllið næst.

Það þjónar litlum tilgangi að fagna sigri áður en leikurinn er búinn. Það þekkjum við vel úr íþróttunum. Þótt leikplanið sé tilbúið á enn eftir að spila leikinn.

Það sama á við um núllið.

Við eigum að fagna eftir leik, þegar niðurstaðan liggur fyrir og árangurinn hefur náðst. En þessi ríkisstjórn virðist hafa kastað þeirri hefð fyrir róða og fagnar nú hverju málinu á fætur öðru áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir.

Ég hef verulegar efasemdir um að núllið náist.

Fórnarkostnaðurinn er einfaldlega of mikill. Hallalaus fjárlög, sama hvað þau kosta samfélagið, eru ekki sjálfkrafa góður árangur.

Það er hægt að ná fram betri stöðu í ríkisfjármálum án þess að kæfa atvinnulífið, draga úr fjárfestingu og skerða lífskjör fólks.

Það er einmitt þar sem leið Framsóknar kemur inn í myndina.

Leiðin okkar er Vinna, vöxtur og velferð.

Hún byggist á annarri sýn en þeirri sem ríkisstjórnin hefur boðað.

Við viljum hleypa súrefni inn í atvinnulífið. Við viljum auðvelda fyrirtækjum að vaxa, fjárfesta og sækja fram. Við viljum auka framleiðni, skapa störf og efla hagvöxt.

Því það er verðmætasköpunin sem stendur undir velferðinni til lengri tíma.

Við viljum vinna með atvinnulífinu, ekki skattleggja það í drasl og draga úr þrótti þess og getu til fjárfestinga og uppbyggingar um allt land.

Velferð verður ekki tryggð til framtíðar með sífellt hærri álögum. Hún verður tryggð með öflugu atvinnulífi, verðmætasköpun og fleiri störfum.

Kæru félagar.

Þegar við tölum um þessa stefnu þurfum við sérstaklega að ræða stöðu landsbyggðarinnar.

Álögur ríkisstjórnarinnar á landsbyggðina og skilningsleysið gagnvart þeim sjónarmiðum sem þar eru uppi er verulegt.

Það birtist meðal annars í áhrifamati stjórnarfrumvarpa þar sem áhrif á dreifðar byggðir landsins eru gjarnan metin engin, þrátt fyrir að augljóst sé að ákvarðanirnar hafi verulegar afleiðingar fyrir atvinnulíf og búsetu um allt land.

Við sjáum þetta í frumvörpum og áformum í sjávarútvegi. Þar hefur ráðherra meðal annars boðað skerðingu á almennum byggðakvóta. Slíkt er bein aðför að heilsársútgerð og fiskvinnslu á mörgum brothættum svæðum landsins.

Við sjáum þetta einnig í landbúnaðinum, sem er önnur af mikilvægustu undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar.

í því samhengi má nefna boðað frumvarp um jurtaosta sem, verði það að veruleika, getur haft áhrif á um 15% mjólkurframleiðslu landsins.

Það er athyglisvert að í því samhengi virðist fjármálaráðherra ekki ræða um sérhagsmuni eða almannahagsmuni. Slík orðræða virðist einfaldlega ekki henta þegar kemur að íslenskum landbúnaði.

Við sjáum þetta líka í hækkun kílómetragjalds, sem mun leiða til aukins flutningskostnaðar til og frá landsbyggðinni. Það hækkar vöruverð og gerir fyrirtækjum úti á landi dýrara að flytja aðföng til sín og koma vörum sínum á markað.

Og við sjáum þetta í sameiningum stofnana og fækkun opinberra starfa á landsbyggðinni. Fækkun sýslumannsembætta, breytingar á heilbrigðiseftirliti, fækkun starfsstöðva Vinnueftirlitsins, sameining lögregluembætta og aukið aðhald í opinberri þjónustu.

Allt eru þetta ákvarðanir sem geta haft veruleg áhrif á þjónustu, atvinnu og búsetuskilyrði fólks úti um land.

Þetta eru ekki bara tölur í frumvörpum eða hagræðingaraðgerðir á blaði. Þetta snýst um fólk, fyrirtæki, byggðarlög og framtíð heilu samfélaganna.

Við í Framsókn höfum gagnrýnt þessa þróun harkalega og munum halda því áfram.

Það er ekki nóg að tala um mikilvægi landsbyggðarinnar á hátíðlegum stundum. Það er ekki nóg að lýsa yfir stuðningi við byggðastefnu í ræðum og yfirlýsingum.

Það þarf að sýna það í verki.

Það þarf að skilja að ákvarðanir sem kunna að virðast skynsamlegar í Reykjavík geta haft allt önnur áhrif á lítið byggðarlag úti á landi.

Það þarf að tryggja að fólk hafi raunverulegt val um búsetu, að fyrirtæki geti starfað og vaxið og að grunnþjónusta sé aðgengileg óháð búsetu.

Ég vil segja þetta alveg skýrt: Meðan ég stend í lappirnar og blóð rennur um æðar mínar mun ég halda áfram að berjast fyrir hagsmunum landsbyggðarinnar.

Það er ekki bara pólitískt verkefni. Það er grundvallarsýn á það hvernig við viljum byggja upp samfélagið okkar.

Kæra Framsóknarfólk.

Við eigum verk að vinna.

Hvort sem það er á Alþingi, í sveitarstjórnum eða í grasrót flokksins um allt land.

Rödd Framsóknar þarf að heyrast. Hún þarf að heyrast þegar rætt er um atvinnulíf, efnahagsmál, velferð, byggðamál og framtíð samfélagsins.

Það er eftirspurn eftir öfgalausum og lausnamiðuðum stjórnmálum. Það er eftirspurn eftir fólki sem byggir á heiðarleika, ábyrgð og vilja til samstarfs.

Við eigum erum sá flokkur.

Við eigum að vera flokkurinn sem sameinar fólk, leitar lausna og horfir til framtíðar.

Flokkurinn sem skilur að verðmætasköpun er forsenda velferðar og að öflug samfélög um allt land eru forsenda sterkrar þjóðar.

Við höfum fólkið, við höfum hugmyndirnar og við höfum reynsluna.

Nú þurfum við að halda áfram, standa saman og láta til okkar taka.

Vinna. Vöxtur. Velferð.

Það er leið Framsóknar. Það er leiðin sem við eigum að berjast fyrir.

Að lokum vil ég segja þetta ég hlakka til að verja helginni með ykkur, taka þátt í umræðunni, málefnastarfinu og síðast en ekki síst njóta samverunnar í góðum hópi vina.

Takk fyrir mig.


Mynd tók Hörður Ragnarsson

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn