Tvö glötuð ár – ríkisstjórnin sendir þjóðinni reikninginn
Tilkynningar

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur harðlega í miðstjórnarræðu sinni á Laugarbakka í dag. Hún sagði ríkisstjórnina hafa brugðist í efnahagsmálum, aukið álögur á heimili og landsbyggð og skapað óvissu um stjórn Landsvirkjunar.
„Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu“
„Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar ríkisstjórnin tók við. Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum. Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg,“ sagði Lilja.
Hún benti á að verðbólgan hefði mælst 5,9% í október og stýrivextir væru enn 8%. Háir vextir bitnuðu á fjölskyldum, ungu fólki og fyrirtækjum og drægju úr fjárfestingu og framtíðartækifærum.
„Það er ekki nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að þetta gerist af sjálfu sér!“ sagði Lilja.
Hallalaus fjárlög á kostnað heimilanna
Lilja gagnrýndi fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 og sagði ríkisstjórnina velta kostnaðinum yfir á heimilin með hækkun skatta og gjalda og niðurfellingu vaxtabóta.
„Ríkisstjórnin talar mikið um hallalaus fjárlög. En það er grundvallarmunur á því að ná jafnvægi með skynsamlegri forgangsröðun og því að senda reikninginn einfaldlega áfram til heimilanna.“
Hún sagði Framsókn hafa sýnt með Heimilissáttinni og reiknivélinni utreikningur.is hvernig ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hefðu áhrif á fjárhag fjölskyldna.
„Reikningurinn er einfaldlega of hár fyrir unga fólkið okkar!“
Lilja sagðist hafa frekar búist við svona fjárlagafrumvarpi frá nýfrjálshyggjuflokki en ekki Jafnaðarmannaflokki Íslands.
„Við erum ein þjóð, í einu landi!“
Lilja sagði ríkisstjórnina þrengja sífellt að landsbyggðinni. Hún nefndi meðal annars áform um hækkun kílómetragjalds, kolefnisgjalds, bifreiðagjalds og gjalda á ferðaþjónustu, auk breytinga á opinberri þjónustu. Lilja sagði að þjóðin byggi landið allt og sagði öfluga landsbyggð vera þjóðhagslegt hagsmunamál.
„Þessi stefna ríkisstjórnarinnar þrengir augljóslega að fólkinu á landsbyggðinni! Við segjum nei við þessari stefnu og höfnum því að kljúfa þjóðina með þessum hætti. Við erum ein þjóð, í einu landi!“
„Látið Landsvirkjun í friði!“
Lilja gagnrýndi jafnframt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsvirkjunar og brotthvarf Harðar Arnarsonar eftir sautján ára starf sem forstjóri.
Hún minnti á að Landsvirkjun hefði greitt um 108 milljarða króna í arð til ríkisins frá árinu 2020 og sagði mikilvægt að standa vörð um faglega stjórnun og sjálfstæði fyrirtækisins.
Sagði hún flokkinn sem auglýsti fyrir síðustu kosningar almannahagsmuni framar sérhagsmunum hafa nú sýnt sitt rétta andlit þar sem sérhagsmunastefna Viðreisnar ráði för.
„Ég vil segja við ykkur Framsóknarfólk: Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar! Ég vil segja við ríkisstjórnina: „Látið Landsvirkjun í friði! Og við fjármálaráðherra vil ég segja: Daði, það er bannað að plata!“
Áhyggjur af hagsmunagæslu Íslands
Lilja gagnrýndi jafnframt málflutning utanríkisráðherra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið. Hún sagði ráðherrann hafa lagt mikla áherslu á breytt öryggisumhverfi og óvissu í samskiptum við Bandaríkin sem rök fyrir því að flýta atkvæðagreiðslunni. Hins vegar hefði komið á daginn að utanríkisráðherra hefði lesið alþjóðastöðuna rangt, bæði er varðar úrlausn mála varðandi framtíð Grænlands og þróunina í stjórnmálum í Bandaríkjunum, þar sem Demókratar unnu stóran kosningasigur í vikunni. Lilja sagði:
„Eitt mikilvægasta hlutverk utanríkisráðherra er að standa vörð um hagsmuni og sjálfsákvörðunarrétt Íslands og að það væri mikill efi í hennar huga að rétt væri staðið að hagsmunagæslu þjóðarinnar með Viðreisn í utanríkisráðuneytinu. Hagsmunamatið var rangt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og eftir hana líka“.
„Framsókn á glæsilega framtíð“
Lilja sagði sveitarstjórnarkosningarnar hafa sýnt styrk Framsóknar um allt land. Flokkurinn hefði boðið fram á 26 stöðum og myndað meirihluta í fjórtán sveitarfélögum. Hún sagði verkefnið nú vera að þétta raðirnar, endurvinna traust kjósenda og undirbúa kosningarnar 2028.
Mynd tók Hörður Ragnarsson


