Sigrún tekur við lyklum að umhverfis- og auðlindaráðuneytinu

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók við lyklum að ráðuneytinu úr höndum Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2. janúar.

Sigrún tók við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra á ríkisráðsfundi á gamlársdag. Að lokinni lyklaafhendingu heilsaði nýr ráðherra upp á starfsfólk sitt.

Sigrún hefur ráðið Ingveldi Sæmundsdóttur aðstoðarmann sinn en Ingveldur var áður aðstoðarmaður Sigurðar Inga í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

 

PS: Ertu á Facebook?Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]